Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.07 bls. 9
  • Upprifjun á efni Boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni Boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2007
Ríkisþjónusta okkar – 2007
km 8.07 bls. 9

Upprifjun á efni boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 27. ágúst 2007. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 2. júlí til 27. ágúst 2007. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐUR

1. Hvernig getum við sýnt öðrum virðingu í boðunarstarfinu og í söfnuðinum? [be bls. 192 gr. 2-4]

2. Hvað þurfum við að hafa í huga ef við viljum að sannfæring okkar sé augljós? [be bls. 196 gr. 1-3]

3. Hvernig getum við verið nærgætin þegar við vitnum fyrir öðrum? [be bls. 198 gr. 1-5]

4. Hvernig ber það vitni um nærgætni að velja réttu stundina til að útskýra eitthvað frekar fyrir viðmælanda okkar? (Orðskv. 25:11) [be bls. 199 gr. 1-3]

5. Hvernig getum við haldið okkur á jákvæðum nótum þegar við flytum ræðu? [be bls. 203 gr. 3-bls. 204 gr. 1]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvaða heimildir höfum við um uppruna Esekíelsbókar og um það að hún sé hluti Heilagrar ritningar? [si bls. 133 gr. 3]

7. Hvaða eiginleiki er nauðsynlegur til að geta umborið óréttlæti? [wE05 1.6. bls. 29 gr. 4]

8. Hvað lærum við af svari Jesú við spurningu Saddúkeanna um upprisu? (Lúk. 20:37, 38) [be bls. 66 gr.4]

9. Hvernig ættirðu að svara ef biblíunemandi eða trúsystkini spyr þig hvað þau eigi að gera við ákveðnar aðstæður? [be bls. 69 gr. 4-5]

10. Hvað felst í því að „endurnýjast í anda og hugsun“? (Ef. 4:23) [be bls. 74 gr. 4]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Hvern táknar maðurinn í línklæðunum í frásögunni í Esekíel 9:2-4 og hvað gefur það til kynna þegar sett er „merki á enni“? [w88 1.11. bls. 20 gr. 18]

12. Hvernig líkjast trúarleiðtogar kristna heimsins „heimsku spámönnum, sem [fóru] eftir hugarburði sjálfra sín“ eins og lýst er í Esekíel 13:3? [w99 1.11. bls. 13]

13. Hvað voru Ísraelsmenn að reyna að gera með því að vitna í ‚orðtakið‘ sem kemur fyrir í Esekíel 18:2 og hvaða mikilvæga lærdóm um ábyrgð má draga af þessu? [w88 1.11. bls. 24 gr. 10]

14. Í hvaða skilningi „þagði“ Esekíel þegar Jerúsalem var umsetin og eydd? (Esek. 24:27; 33:22) [wE03 1.12. bls. 29]

15. Hver er „Góg í Magóglandi“ og hvenær lætur hann til skarar skríða til að útrýma fólki Jehóva? (Esek. 38:2, 16) [w97 1.5. bls. 24 gr. 1-bls. 25 gr. 3]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila