Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í maí: Varðturninn og Vaknið! Heimsækið aftur þá sem sýnt hafa áhuga, til dæmis þá sem voru viðstaddir minningarhátíðina eða einhverja aðra samkomu eða mót, en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu. Reynið í framhaldinu að bjóða Hvað kennir Biblían? með það fyrir augum að hefja biblíunámskeið. Júní: Er til skapari sem er umhugað um okkur? eða Farsælt fjölskyldulíf — hver er leyndardómurinn? Júlí og ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna?
◼ Í samræmi við leiðbeiningarnar í greininni „Ertu viðbúinn náttúruhamförum?“ í Ríkisþjónustunni í janúar 2007 ættu bóknámsumsjónarmenn að ganga úr skugga um að þeir hafi heimilisfang og símanúmer allra boðbera í bóknámshópnum. Og jafnvel þótt ekki sé um neyðartilvik að ræða væri það gagnlegt fyrir bóknámsumsjónarmanninn ef boðberar létu hann vita að þeir verði fjarverandi í lengri tíma eins og til að fara í ferðalög, í viðskiptaferðir, á sjúkrahús o.þ.h.