Bréf frá hinu stjórnandi ráði
AÐ FYRIRMYND Jesú biðjum við einlæglega til Guðs: „Helgist þitt nafn.“ Sem vottum Jehóva er okkur mikið í mun að lifa í samræmi við þessa bæn og þessi löngun birtist í líferni okkar. Auðvitað er ekki nóg að vita aðeins hvað Guð heitir heldur verðum við líka að nota hvert tækifæri sem býðst til að helga nafn hans. Meiri heiður er ekki til en að vera nefndur vottur Jehóva. — Matt. 6:9; Jes. 43:10.
Í samræmi við Sálm 110:3 eru þjónar Jehóva meira en fúsir til að vinna það verk sem hann hefur fyrirskipað. Hvers vegna er fólk af öllum aldurshópum og alls konar uppruna fúst til að boða fagnaðarerindið af miklu kappi? Fyrst og fremst vegna þess að það elskar Guð og hefur vígt sig honum. Í 5. Mósebók 6:5, 6 er okkur sagt að elska Jehóva af ‚öllu hjarta, allri sálu og öllum mætti‘. Þessi innilegi kærleikur veldur því að við viljum nota tíma okkar, krafta og fjármuni til að efla hag Guðsríkis, og það felur meðal annars í sér að taka eins mikinn þátt í boðunarstarfinu og við höfum tök á.
Það er kærleikur Jehóva til mannkyns sem veldur því að hann lætur boða fagnaðarerindið um ríkið út um allan heim. Hann vill ekki að neinir glatist heldur að allir iðrist rangrar stefnu sinnar og snúi sér til skapara síns svo að þeir geti hlotið eilíft líf. (2. Pét. 3:9) „Ég [hef] ekki þóknun á dauða hins óguðlega,“ segir Jehóva, „heldur að hinn óguðlegi hverfi frá breytni sinni og haldi lífi.“ (Esek. 33:11) Þegar við tökum þátt í boðunarstarfinu erum við sýnilegt merki um kærleika Jehóva til allra manna. Þetta stuðlar eflaust að því að við höfum yndi og ánægju af því að taka þátt í þessu mikilvæga starfi.
Sterkur kærleikur okkar til Jehóva endurspeglast einnig í því hvaða augum við lítum á orð hans, Heilaga ritningu. Án Biblíunnar hefðum við ekki kynnst Guði eða getað nálægst hann eins og við erum hvött til í Jakobsbréfinu 4:8. Við vissum ekki heldur hver tilgangur lífsins er og hvað framtíðin ber í skauti sér. Við vissum þá ekki að rekja má erfiðleika okkar til Adams, forföður alls mannkyns. (Rómv. 5:12) Við vissum ekki heldur af þeim mikla kærleika sem Guð sýndi með því að gefa eingetinn son sinn sem lausnargjald fyrir okkur. Jehóva miðlar okkur af þekkingu sinni, visku og skilingi á marga aðra vegu. Innblásið orð hans er ómetanleg gjöf til okkar. Svo mikils metum við Biblíuna að við ‚notum hverja stund‘ til að lesa í henni, rannsaka hana og hugleiða. (Ef. 5:15, 16; Sálm. 1:1-3) Við ættum aldrei að sjá eftir þeim tíma sem það tekur að lesa daglega í Biblíunni heldur ættum við að laðast að henni af því að við elskum Guð. Þannig aukum við þekkingu okkar á honum og styrkjum kærleikann til hans.
Af lestri Biblíunnar vitum við að þegar Adam syndgaði gegn Jehóva setti hann alla ófædda afkomendur sína, þar á meðal okkur öll, í ömurlega og vonlausa aðstöðu. En Jehóva gat séð mannkyninu fyrir undankomuleið og gerði ráðstafanir til að fyrirætlun sín með jörðina næði fram að ganga. — 1. Mós. 3:15.
Eflaust langar okkur öll til að helga hið dýrlega nafn Guðs. Þegar við fræðumst nánar um það hve stórkostlegur Guð Jehóva er finnum við sterka hvöt hjá okkur til að vinna með honum og söfnuði hans að því að kunngera nafn hans og fyrirætlun. Við höfum fyrirheit um velþóknun hans og blessun og von um eilíft líft í nýjum heimi.
Við sem sitjum í hinu stjórnandi ráði viljum ítreka hve innilega vænt okkur þykir um ykkur, kæru bræður og systur. Og við viljum að þið vitið hve mikils við metum dugnað ykkar og elju við að koma fagnaðarerindinu til sem flestra á þeim tíma sem eftir er þangað til ‚þrengingin mikla‘ skellur á. (Opinb. 7:14) Þannig gefið þið öðrum sama tækifæri og þið hafið fengið, það tækifæri að hljóta þekkingu á Guði og Kristi sem er forsenda þess að hljóta eilíft líf. — Jóh. 17:3.
Bræður ykkar,
Stjórnandi ráð Votta Jehóva