Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.07 bls. 11
  • Upprifjun á efni boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2007
Ríkisþjónusta okkar – 2007
km 2.07 bls. 11

Upprifjun á efni boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 26. febrúar 2007. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 1. janúar til 26. febrúar 2007. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐUR

1. Hvenær eigum við að benda á hagnýtt gildi efnisins þegar við flytjum ræðu og hvernig eigum við að fara að því? [be bls. 158 gr. 2-4]

2. Hvers vegna er mikilvægt að hjálpa öðrum að átta sig á hagnýtu gildi efnisins og hvernig getum við gert það? [be bls. 159 gr. 3-4]

3. Hvers vegna skiptir orðaval okkar máli? [be bls. 160]

4. Hvað getur hjálpað okkur að nota fjölbreytt og nákvæmt orðaval? [be bls. 161 gr. 5-6; bls. 162 gr. 1, 4]

5. Hverjir eru kostir þess að tala eftir uppkasti sem þú geymir annaðhvort í huganum eða á blaði? [be bls. 166 gr. 1-3]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvernig búum við okkur undir upplestrarverkefni? [be bls. 43 gr. 2, 4]

7. Hvað er mikilvægt að gera til að læra að elska hið rétta og hata hið ranga eins og Jehóva gerir? (Hebr. 5:14) [w05 1.3. bls. 10 gr. 11]

8. Hvað ættum við að muna ef við lesum eitthvað í Biblíunni sem vekur efasemdir um það hvort Guð sé réttlátur? [w05 1.5. bls. 29 gr. 7]

9. Hvað ættum við að gera þegar kröfur manna stangast á við lög Guðs? [w05 1.7. bls. 20 gr. 9]

10. Hvernig beinir Jesajabók athyglinni að ríki Messíasar og að fyrirrennaranum, Jóhannesi skírara? [si bls. 123 gr. 35]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Hvað er ‚skýlan‘ og ‚hjúpurinn‘ sem talað er um í Jesaja 25:7?

12. Hvernig getur fólk séð og heyrt Jehóva? (Jes. 30:20, 21)

13. Rétt eða rangt: Bæn Hiskía í Jesaja 38:3 var einungis sprottin af ósk hans um að lifa lengur.

14. Hvernig gátu Ísraelsmenn verið vottar Jehóva og hvernig getum við líkt eftir þeim? (Jes. 43:10)

15. Hvaða kröfur eru gerðar til þeirra sem ‚bera ker Jehóva‘ í samræmi við spádómlegu fyrirmyndina í Jesaja 52:11, 12?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila