Afræktu ekki þinn fyrri kærleika
1 Hinn dýrlega gerði Jesús sagði við söfnuðinum í Efesus á fyrstu öld: „Það hef ég á móti þér, að þú hefur afrækt þinn fyrri kærleika.“ (Opinb. 2:4) Ljóst er að margir báru ekki eins mikinn kærleika til Jehóva og þeir gerðu í fyrstu. Þegar við vorum að kynnast sannleikanum glæddum við með okkur sterkan kærleika til Guðs og náungans og þess vegna höfðum við brennandi löngun til að segja öðrum frá þessari nýju von okkar. Hvernig getum við gætt þess að afrækja ekki kærleikann sem við höfðum í fyrstu og hægja ekki á okkur í boðunarstarfinu?
2 Sjálfsnám og samkomusókn: Hvað glæddi kærleika okkar til Guðs og náungans þegar við vorum að kynnast sannleikanum? Var það ekki allt sem við lærðum um Jehóva í biblíunámi okkar? (1. Jóh. 4:16, 19) Til þess að „elska [okkar] aukist enn þá meir og meir“ verðum við að halda áfram að afla okkur nákvæmrar þekkingar og kafa í „djúp Guðs“. — Fil. 1:9-11; 1. Kor. 2:10.
3 Það getur verið hægara sagt en gert að halda góðri reglu á sjálfsnámi nú á hinum síðustu dögum því að það er svo margt sem veldur kvíða og togar í okkur. (2. Tím. 3:1) Við verðum markvisst að taka frá tíma til þess að nærast á andlegri fæðu. Það er líka mikilvægt að sækja samkomur reglubundið og það því fremur sem við sjáum „að dagurinn færist nær“. — Hebr. 10:24, 25.
4 Boðunarstarfið: Ötul þátttaka í boðunarstarfinu stuðlar að því að við afrækjum ekki okkar fyrri kærleika. Þegar við segjum öðrum frá fagnaðarerindinu minnum við okkur sjálf á kærleiksrík loforð Jehóva og það hjálpar okkur að hafa vonina skýrt í huga og halda kærleikanum lifandi. Til að geta kennt öðrum sannleika Biblíunnar þurfum við sjálf að afla okkur upplýsinga svo að við skiljum efnið vel og trúin styrkist við það. — 1. Tím. 4:15, 16.
5 Við eigum Jehóva allt að þakka, þess vegna verðskuldar hann að við sýnum honum kærleika. (Opinb. 4:11) Láttu ekki kærleika þinn dofna. Viðhaltu upphaflegum kærleika þínum með markvissu sjálfsnámi í Biblíunni, reglulegri samkomusókn og segðu öðrum af kostgæfni frá því sem er hjarta þínu kærast. — Rómv. 10:10.