Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 12.06 bls. 7
  • Upprifjun á efni boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2006
Ríkisþjónusta okkar – 2006
km 12.06 bls. 7

Upprifjun á efni boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 25. desember 2006. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 6. nóvember til 25. desember 2006. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐUR

1. Hvað þurfum við að hafa í huga þegar við kynnum ritningarstaði? [be bls. 148 gr. 4–bls. 149 gr. 1]

2. Hvaða aðferðum má beita til að tryggja réttar áherslur á orð og orðasambönd? [be bls. 151 gr. 4–bls. 152 gr. 3]

3. Hvað þurfum við að gera til að ‚fara rétt með orð sannleikans‘, í ljósi þess hve alvarlegt mál það er að fræða aðra um orð Guðs? (2. Tím. 2:15) [be bls. 153 gr. 1-3, rammi; bls. 154 gr. 1-2]

4. Hvernig getum við skýrt ritningarstaði vel? [be bls. 154 gr. 4–bls. 155 gr. 3]

5. Hvers vegna er mikilvægt að draga fram hagnýtt gildi efnisins og hvernig er hægt að gera það? [be bls. 157 gr. 1-4; bls. 158 gr. 1]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvernig stuðlaði Salómon að því að sameina þjóðina? [si bls. 112 gr. 1-3]

7. Hvernig samræmist Prédikarinn kenningum Jesú? [si bls. 114 gr. 16]

8. Hvaða sönnun er fyrir því að Ljóðaljóðin eigi heima í helgiritasafni Biblíunnar? [si bls. 115 gr. 3-4]

9. Hvernig sanna Dauðahafshandritin af Jesajabók að Biblían sé eins núna og þegar hún var upphaflega skrifuð undir innblæstri? [si bls. 118 gr. 6]

10. Hvað getur auðveldað ræðumanni að styðjast við einfalt uppkast? [be bls. 42 gr. 2]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Hvernig geta ‚þeir sem leita Drottins skilið allt‘? (Orðskv. 28:5)

12. Hvernig ‚þreytir amstur heimskingjans hann‘? (Préd. 10:15)

13. Hvernig var stúlkan frá Súlem eins og „lokaður garður“ og hvernig er hún góð fyrirmynd fyrir ógiftar kristnar konur? (Ljóðalj. 4:12)

14. Var Jehóva að bjóðast til að semja við fólk sitt þegar hann bauð Ísraelsmönnum að ‚eiga lög við‘ sig? (Jes. 1:18)

15. Hvernig uppfylltist Jesaja 11:6-9 til forna og hver er meiri uppfyllingin?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila