Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 10.06 bls. 7
  • Upprifjun á efni boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2006
Ríkisþjónusta okkar – 2006
km 10.06 bls. 7

Upprifjun á efni boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 30. október 2006. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 4. september til 30. október 2006. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐUR

1. Hvers vegna er öryggi og jafnvægi mikilvægt og hvernig getum við dregið úr kvíða? [be bls. 135 gr. 5-bls. 137. gr. 2, ásamt römmum]

2. Hvers vegna reynum við að nota Biblíuna til að svara fólki þegar það spyr um trú okkar? [be bls. 143 gr. 1-3]

3. Hvernig getum við orðið færari í að nota Biblíuna? [be bls. 144, rammi]

4. Hvers vegna er mikilvægt að nota Biblíuna vel þegar við kennum í boðunarstarfinu, og hvernig getum við hvatt alla til að nota Biblíuna á safnaðarsamkomum? [be bls. 145-46 ásamt römmum]

5. Hvaða tvö markmið höfum við þegar við kynnum ritningastað? [be bls. 147 gr. 2]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvaða mikilvæga boðskap er að finna í Sálmunum? [si bls. 104 gr. 23]

7. Hvenær voru Orðskviðirnir skrifaðir og hvenær var þeim safnað saman? [si bls. 107 gr. 5]

8. Hvað er orðskviður og hvers vegna er hebreskt heiti biblíubókarinnar viðeigandi? [si bls. 107 gr. 6]

9. Hvað er fólgið í hvatningunni í Orðskviðunum 2:1-5 um að leita að speki, skilningi og hyggindum „sem að silfri“ og grafast eftir þeim „eins og fólgnum fjársjóðum“? [be bls. 38 gr. 4]

10. Hvernig kemur fram í Orðskviðunum að þeir eru gagnlegir? [si bls. 109 gr. 19]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Hvernig gat Davíð ‚sefað sál sína og þaggað niður í henni eins og afvanið barn hjá móður sinni‘ og hvernig getum við líkt eftir honum? (Sálm. 131:1-3)

12. Hvaða huggun er að finna í Sálmi 139:7-12?

13. Nefndu dæmi úr Sálmi 145 um mikilleik Jehóva sem við getum lofað hann fyrir í bænum okkar og í boðunarstarfinu. (Sálm. 145:3)

14. Hvernig er ótti Jehóva „upphaf þekkingar“ og „upphaf viskunnar“? (Orðskv. 1:7; 9:10)

15. Hvað er átt við með „orð mín“ og „boðorð mín“ eins og talað er um í Orðskviðunum 7:1, 2?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila