Upprifjun á efni boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 28. ágúst 2006. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 3. júlí til 28. ágúst 2006. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐIR
1. Hvernig getur augnasamband hjálpað okkur að verða betri kennarar? (Matt. 19:25, 26; Post. 14:9, 10) [be bls. 124 gr. 3 – bls. 125 gr. 3]
2. Af hverju er mikilvægt að vera eðlilegur í fasi og hvað getur auðveldað okkur að vera það þegar við erum í boðunarstarfinu? [be bls. 128, gr. 1-5, rammi]
3. Hvers vegna ættum við að láta okkur umhugað um að vera snyrtileg og hrein? [be bls. 131, gr. 1-3]
4. Hvernig ætti ‚látleysi og heilbrigt hugarfar‘ að hafa áhrif á klæðaburð okkar? (1. Tím. 2:9, NW) [be bls. 131, gr. 4-bls. 132, gr. 1]
5. Hvaða frumreglu Biblíunnar ættum við að fylgja til að tryggja að útlit okkar endurspegli ekki ást á heiminum? [be bls. 133, gr. 2-3]
VERKEFNI NR. 1
6. Hvað er það mikilvægasta sem lestrarkunnátta veitir okkur aðgang að? [be bls. 21, gr. 3]
7. Hvað sker úr um hvort manneskja sé vitur eð óvitur? (Orðskv. 14:2) [wE04 15.11. bls. 26, gr. 5]
8. Hvers vegna er ‚þekkingin auðfengin hyggnum manni‘? (Orðskv. 14:6) [wE04 15.11. bls. 28, gr. 4-5]
9. Hvað er nám? [be bls. 27 gr. 3]
10. Hvaða áhrif ætti það að hafa á okkur þegar við hugleiðum sköpunarverk Jehóva? [wE04 15.11. bls. 8, gr. 4]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Hvernig lét Jehóva „orð sín rætast“ fyrr á tímum svo að ‚konurnar sem sigur boðuðu‘ urðu mikill her, og hvernig eru þau að rætast núna? (Sálm. 68:12)
12. Hvað varð næstum til þess að Asaf hætti að breyta rétt og hvernig var hugsunarháttur hans leiðréttur? (Sálm. 73:2, 3, 17)
13. Af hverju var mannað, sem Ísraelsmönnum var gefið, kallað „himnakorn“ og „englabrauð“? (Sálm. 78:24, 25)
14. Hvað er ‚skjól hins hæsta‘ og hvernig getum við ‚setið‘ þar? (Sálm. 91:1, 2)
15. Hvernig er dauði dýrkenda Jehóva dýr í augum hans? (Sálm. 116:15)