Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í júní: Lærum af kennaranum mikla. Ef húsráðandi segist ekki eiga nein börn má bjóða Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt. Júlí og ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Bók fyrir alla menn, Haltu vöku þinni!, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? September: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið í fyrstu heimsókn. Heimsækið aftur alla þá sem þiggja bókina með það fyrir augum að hefja biblíunámskeið.
◼ Þar sem fimm helgar eru í júlí væri kjörið að nota mánuðinn til aðstoðarbrautryðjandastarfs.
◼ Farið verður yfir myndbandið Young People Ask — How Can I Make Real Friends? (Ungt fólk spyr — hvernig get ég eignast sanna vini?) á þjónustusamkomu í september. Ef einhverja vantar þetta myndband er þeim bent á að panta það í ritadeildinni eins fljótt og hægt er.