Þjónusta okkar endurspeglar umhyggju
1 Jesús tók eftir mannfjöldanum sem hlustaði á boðskap hans og sá að menn voru „hrjáðir og umkomulausir eins og sauðir, er engan hirði hafa“. (Matt. 9:36) Með kærleika og hlýju viðmóti fræddi hann þá um staðla Jehóva, veitti þeim huggun og hlúði að andlegum þörfum þeirra af mikilli umhyggju. Við temjum okkur sams konar hugarþel og Jesús með því að hugleiða hvernig hann fór að. Þá tekur fólk eftir umhyggju okkar í boðunarstarfinu.
2 Hugleiddu aðeins hvernig Jesús brást við þegar fólk kom til hans í sárri þörf fyrir hjálp. (Lúk. 5:12, 13; 8:43-48) Hann var nærgætinn við fólk með sérstakar þarfir. (Mark. 7:31-35) Hann var vakandi fyrir tilfinningum annarra og sýndi þeim umhyggju. Hann leit ekki aðeins á hið ytra. (Lúk. 7:36-40) Jesús endurspeglaði umhyggju Guðs fullkomlega.
3 „Hann kenndi í brjósti um þá“: Jesús sinnti starfi sínu ekki aðeins af skyldukvöð. „Hann kenndi í brjósti“ um fólk. (Mark. 6:34) Eins er það með okkur nú á dögum. Við erum ekki aðeins að koma boðum til skila heldur reynum við að bjarga dýrmætum mannslífum. Reynum að skilja hvers vegna fólk bregst við eins og raun ber vitni. Hvers vegna er það kvíðið eða áhyggjufullt? Hafa trúarlegir falshirðar svikið það eða vanrækt? Einlægur áhugi okkar á öðrum getur fengið fólk til að hlusta á fagnaðarerindið. — 2. Kor. 6:4, 6.
4 Umhyggja snertir hjörtu fólks. Tökum dæmi: Kona nokkur varð fyrir þeirri miklu sorg að missa þriggja mánaða gamla dóttur sína. Tvær systur heimsóttu hana í starfinu og hún bauð þeim inn með það í huga að hrekja rök þeirra fyrir því hvers vegna Guð leyfir þjáningar. Konan sagði þó síðar: „Þær hlustuðu á mig með mikilli umhyggju og samúð og þegar þær fóru leið mér mun betur svo að ég féllst á að þær kæmu aftur.“ Leitast þú við að sýna umhyggju öllum sem þú hittir í boðunarstarfinu?
5 Ef við ræktum með okkur umhyggju eigum við auðveldara með að veita öðrum sanna huggun. Þegar við gerum það heiðrum við Jehóva, sem er „faðir miskunnsemdanna“. — 2. Kor. 1:3.