Heimsátak til að kynna umdæmismótið „Lausnin er í nánd“
Boðberar í öllum söfnuðum dreifi sérstökum boðsmiða
1 Gert verður átak til að kynna umdæmismótin sem haldin verða á þessu ári og fram á það næsta í um 155 löndum. Þetta verður gert með því að dreifa sérstökum boðsmiðum. Átakið hefst núna í vor á norðurhveli jarðar og heldur áfram um allan heim þar til öll mótin eru um garð gengin. Þetta átak nær líka til sérmótanna sem haldin verða í Þýskalandi, Tékklandi og Póllandi í júlí og fyrstu vikunni í ágúst 2006.
2 Mótið beinir athygli fólks að loforði Guðs um lausn frá þessu illa heimskerfi. Það ætti að höfða sterkt til þeirra sem hafa rétt hugarfar, ekki síst í ljósi þess hve langt er liðið á endalokatímann. Dagskráin ætti að hvetja þá til að hugleiða hvað sé framundan. Boðberar í yfir 98.000 söfnuðum Votta Jehóva út um allan heim eru hvattir til að taka þátt í að auglýsa mótið sem þeir sækja til að milljónir manna geti heyrt þennan boðskap um huggun og von.
3 Söfnuðir fá sent nægilegt magn til að hver boðberi geti fengið allt að 50 boðsmiða. Ef eitthvað er afgangs má biðja brautryðjendur að dreifa því. Herferðin byrjar þremur vikum fyrir mótið sem söfnuðurinn sækir. Þetta er gott tækifæri til að auglýsa landsmótið á svæði safnaðarins.
4 Mælt er með því að við afhendum húsráðanda boðsmiðann í eigin persónu. En ef enginn er heima má stinga honum í bréfalúguna. Við ættum að leggja okkur fram um að dreifa öllum boðsmiðunum á þessu þriggja vikna tímabili.
5 Við treystum því að þetta sérstaka átak til að auglýsa mótið „Lausnin er í nánd“ um allan heim verði mikill vitnisburður. Megi Jehóva blessa viðleitni þína til að taka þátt í þessu kynningarátaki.