Að viðhalda brennandi áhuga
1 Brennandi áhugi einstakra trúsystkina okkar í boðunarstarfinu gæti minnt okkur á atorkuna sem Apollós sýndi á þjónustuferli sínum. (Post. 18:24-28) En hvatningin til okkar allra er: „Verið ekki hálfvolgir í áhuganum, verið brennandi í andanum.“ (Rómv. 12:11) Hvað getum við gert til að öðlast brennandi áhuga og sýna hann áfram í þjónustunni?
2 Þekking örvar: Þegar Jesús hafði birst tveim af lærisveinum sínum útlagði hann „fyrir þeim það, sem um hann er í öllum ritningunum“. Þá sögðu þeir: „Brann ekki hjartað í okkur, meðan hann talaði við okkur á veginum?“ (Lúk. 24:27, 32) Brennur ekki hjartað í okkur einnig þegar við fáum aukinn skilning á orði Guðs? Vissulega örvar þekkingin trúna. Í Rómverjabréfinu 10:17 stendur: „Svo kemur þá trúin af boðuninni.“ Þegar við treystum fullkomlega loforðum Jehóva getum við einfaldlega ekki hætt að tala um það sem við höfum lært. — Sálm. 145:7; Post. 4:20.
3 Við getum ekki eingöngu treyst á þekkinguna sem við höfum fengið með fyrra námi til þess að kærleikurinn til Guðs haldist og áhuginn í þjónustunni verði brennandi. Við verðum að halda áfram að víkka skilning okkar á sannleikanum og láta kærleikann til Jehóva dýpka. Annars gæti þjónustan smám saman orðið til málamynda. (Opinb. 2:4) Í orði Guðs erum við hvött til að vaxa „að þekkingu á Guði“. — Kól. 1:9, 10.
4 Námsvenjur okkar: Við hefðum gott af því að athuga námsvenjur okkar. Við gætum til að mynda strikað undir svörin í námsgreinunum í Varðturninum og verið tilbúin að svara á viðeigandi hátt. En flettum við upp á ritningarstöðunum sem vitnað er í og veltum við því fyrir okkur hvernig efnið geti höfðað til okkar sjálfra? Leggjum við okkur fram um að nota ítarefni við vikulegan biblíulestur, ef aðstæður leyfa, og hugleiða lærdóminn sem í honum felst? (Sálm. 77:12, 13; Orðskv. 2:1-5) Það er ákaflega gagnlegt að hugleiða og sökkva sér niður í orð Guðs. (1. Tím. 4:15, 16) Nám, sem stundað er af slíkri einlægni, nærir hugann og örvar okkur til að vera ‚kostgæfin til góðra verka‘. — Tít. 2:14.