Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 12.05 bls. 4
  • Upprifjun á efni Boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni Boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2005
Ríkisþjónusta okkar – 2005
km 12.05 bls. 4

Upprifjun á efni Boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 26. desember 2005. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 7. nóvember til 26. desember 2005. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐIR

1. Hvernig getum við veitt áminningu „vegna kærleika“? (Fílem. 9) [be bls. 266 gr. 1-4]

2. Hvernig getum við áminnt „með hinni heilnæmu kenningu“? (Tít. 1:9) [be bls. 266 gr. 5–bls. 267 gr. 1]

3. Hvers vegna er mikilvægt að semja hvetjandi ræður og hvernig getum við gert það? [be bls. 268 gr. 1-3, rammagrein]

4. Hvernig getum við, líkt og Móse, talið hug í aðra þegar við minnum þá á það sem Jehóva hefur gert fyrir fólk sitt? (5. Mós. 3:28; 31:1-8) [be bls. 268 gr. 5–bls. 269 gr. 2]

5. Af hverju er það hvetjandi fyrir áheyrendur okkar ef orð okkar bera með sér að við höfum yndi af því sem Guð er að gera núna og mun gera í framtíðinni? [be bls. 270-1]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvað er Sjötíumannaþýðingin og hvers vegna er hún áhugaverð fyrir kristna menn? [si bls. 307 gr. 12–bls. 310 gr. 14]

7. Hverjir voru Masoretarnir og hvað lögðu þeir til biblíuþýðinga? [si bls. 310 gr. 18; bls. 311 gr. 20-1]

8. Á hvaða grunni byggjast hebreskar ritningar Nýheimsþýðingarinnar á ensku og hvers vegna er hægt að segja að þessi þýðing sé áreiðanleg? [si bls. 312 gr. 28, 30]

9. Hvernig sýndu hinir frumkristnu að þeir þráðu að gefa út orð Guðs? [si bls. 315 gr. 1-5]

10. Hvað kemur í ljós þegar biblíuhandrit og texti heilagrar ritningar eru borin saman? [si bls. 320 gr. 32]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Var Jehóva ósamþykkur bardögunum sem Davíð háði fyrst Davíð fékk ekki að byggja musterið? (1. Kron. 22:6-10)

12. Þegar Salómon vígði musterið, hvernig benti hann á í bæn sinni að Jehóva sjái ekki aðeins um þarfir þjóna sinna sem hóps heldur þekki einnig aðstæður hvers einstaklings sem óttast hann? (2. Kron. 6:29, 30)

13. Hvað er átt við með „saltsáttmála“? (2. Kron. 13:5)

14. Hvernig getur það komið heim og saman að Basa hafið farið í „herför á móti Júda“ „á þrítugasta og sjötta ríkisári Asa“ fyrst Basa hóf að ríka „á þriðja ríkisári Asa“ og ríkti aðeins í 24 ár? (1. Kon. 15:33; 2. Kron. 16:1)

15. Hvernig lýsir 2. Kroníkubók 20:22, 23 á lifandi hátt því sem koma mun yfir heim Satans?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila