Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 11.05 bls. 3
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2005
Ríkisþjónusta okkar – 2005
km 11.05 bls. 3

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í nóvember: Lærum af kennaranum mikla. Ef húsráðandi á engin börn má bjóða Þekkingarbókina eða smáritið Langar þig að vita meira um Biblíuna? Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Einnig mætti bjóða Biblíusögubókina mína eða Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Janúar: Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt, Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Febrúar: Nálægðu þig Jehóva.

◼ Umsjónarmaður í forsæti eða einhver sem hann tilnefnir á að endurskoða reikningshald safnaðarins 1. desember eða eins fljótt þar á eftir og mögulegt er. Ef sér bókhald er haldið fyrir rekstur á ríkissal ætti að endurskoða það líka. Þegar því er lokið skal tilkynna það söfnuðinum þegar næsta reikningshaldsskýrsla er lesin upp.

◼ Á þjónustusamkomu í janúar verður farið yfir myndbandið Transfusion-Alternative Health Care — Meeting Patient Needs and Rights (Læknismeðferð án blóðgjafar — þarfir og réttindi sjúklinga). Ef einhverja vantar þetta myndband er þeim bent á að panta það eins fljótt og hægt er. Það er einnig fáanlegt á mynddiski (DVD) sem hluti af myndasyrpu um læknismeðferð án blóðgjafar.

◼ Það var sérlega ánægjulegt fyrir okkur að sjá frásöguna af starfi votta Jehóva á Íslandi í árbókinni 2005. Og ekki dró það úr gleðinni þegar tilkynnt var á landsmótinu „Hlýðni við Guð“ að frásagan hefði verið þýdd á íslensku og gefin út í fallegum bæklingi með fjölda mynda.

Mörgum sem hafa kynnst söfnuði okkar og starfi þykir eflaust áhugavert að lesa bæklinginn Vottar Jehóva á Íslandi - saga þrautseigju og þolgæðis. Þótt ekki sé gert ráð fyrir því að við bjóðum bæklinginn í starfi okkar hús úr húsi er ekkert því til fyrirstöðu að bjóða hann biblíunemendum okkar, kunningjum, vinum, ættingjum og fólki sem sýnt hefur áhuga á trú okkar og við heimsækjum reglulega.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila