Hvað geturðu sagt um blöðin?
Varðturninn 1. júlí
„Flest okkar vinna mestan hluta ævinnar. Sumir líta á það sem blessun en aðrir sem bölvun. Hvað finnst þér? [Gefðu kost á svari og lestu síðan Prédikarann 2:24.] Þetta tímarit bendir á hvernig Biblían getur hjálpað okkur að hafa rétt viðhorf til vinnu. Það fjallar einnig um hvernig hægt er að glíma við vinnustreitu.“
Vaknið! júlí-september
„Flestir foreldrar leyfa börnunum sínum ekki að horfa á hvað sem er. Hefur þér fundist erfitt að finna kvikmyndir sem eru viðeigandi fyrir fjölskylduna? [Gefðu kost á svari og lestu síðan Efesusbréfið 4:17.] Í þessu blaði er rætt um hvernig foreldrar geta hjálpað börnunum að velja heilnæmt skemmtiefni.“
Kynning á Kröfubæklingnum
„Menn þurfa að takast á við margt í lífinu nú á tímum og því mætti spyrja hvort bænin geti komið okkur að raunverulegu gagni?[Gefðu kost á svari.] Margir segja að bænin veiti þeim innri styrk. [Lestu Filippíbréfið 4:6, 7.] Engu að síður getur þeim fundist að þeir fái ekki bænheyrslu. [Opnaðu Kröfubæklinginn á kafla 7.] Þessi bæklingur útskýrir hvernig bænin getur gagnast okkur sem best.“