Dagur Jehóva er nálægur
1 Kristnir menn bíða dags Jehóva með eftirvæntingu en þá bindur hann enda á núverandi ástand mála og kemur á fót nýjum réttlátum heimi. (2. Pét. 3:12, 13) Þar sem við vitum ekki nákvæmlega hvenær sá dagur kemur verðum við að halda vöku okkar og hjálpa öðrum að gera slíkt hið sama. (Esek. 33:7-9; Matt. 24:42-44) Við styrkjum sannfæringu okkar um að „hinn mikli dagur Drottins er nálægur“ með því að hugleiða spádómana í orði hans. — Sef. 1:14.
2 Röð heimsvelda: Í Opinberunarbókinni 17:9-11 talar Jóhannes postuli um ‚sjö konunga‘ en þeir tákna sjö heimsveldi sem ríkja hvert á fætur öðru. Hann minnist líka á ‚áttunda‘ konunginn sem táknar núna Sameinuðu þjóðirnar. Eigum við að búast við að önnur heimsveldi komi fram á sjónarsviðið? Nei, spádómurinn segir að áttundi konungurinn fari „til glötunar“ og eftir það er ekki talað um fleiri jarðneska konunga. Hjálpar þessi spádómur þér að sjá hvar við stöndum í tímans rás?
3 Daníel 2:31-45 skýrir fyrir okkur komu dags Jehóva. Í spádóminum táknar risastóra líkneskið í draumi Nebúkadnesars röð heimsvelda. Öll þessi heimsveldi hafa þegar komið fram. Hvar erum við stödd í framrás sögunar? Á þeim tíma sem táknaður er með fótum líkneskisins. Spádómurinn lýsir á ljóslifandi hátt hvað gerist næst. Stjórnum manna verður algerlega eytt og við tekur „ríki, sem aldrei skal á grunn ganga“. Sérðu hvernig þetta sannar að dagur Jehóva er nálægur?
4 Fleiri sannanir: Við erum sjónarvottar að fleiri sönnunum fyrir því að dagur Jehóva er nálægur. Við sjáum að spádómur Páls postula um hegðun manna á hinum „síðustu dögum“ er að uppfyllast. (2. Tím. 3:1-5) Við tökum einnig þátt í alþjóðlegu prédikunarstarfi sem verður að vinna áður en endirinn kemur. (Matt. 24:14) Í Opinberunarbókinni lýsir engill yfir: „Óttist Guð og gefið honum dýrð, því að komin er stund dóms hans.“ Höldum áfram að endurspegla í boðunarstarfinu hversu áríðandi þessi yfirlýsing er. — Opinb. 14:6, 7