Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 3.05 bls. 5
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2005
Ríkisþjónusta okkar – 2005
km 3.05 bls. 5

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í febrúar: Nálægðu þig Jehóva. Mars: Haltu vöku þinni! Ef áhugi er fyrir hendi má bjóða Þekkingarbókina með það fyrir augum að hefja biblíunámskeið. Apríl og maí: Varðturninn og Vaknið! Gott væri að bjóða bókina Sameinuð í tilbeiðslu þegar við heimsækjum aftur áhugasamt fólk og þá sem hafa verið viðstaddir minningarhátíðina eða aðrar samkomur en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu. Markmiðið ætti að vera að hefja biblíunámskeið og þá sérstaklega hjá þeim sem þegar hafa farið yfir Þekkingarbókina og Kröfubæklinginn. Júní: Lærum af kennaranum mikla. Ef húsráðandi segist ekki eiga nein börn má bjóða Þekkingarbókina með það fyrir augum að hefja biblíunámskeið.

◼ Afgreiða ætti ný blöð jafnskjótt og þau berast. Boðberar geta þá kynnt sér efni þeirra áður en þeir bjóða þau í boðunarstarfinu. Einnig ætti að afhenda boðberum Ríkisþjónustuna um leið og hún berst. Það er hægt að gera í bóknáminu.

◼ Ef boðberar hafa í hyggju að sækja samkomur eða mót á erlendri grund ættu þeir að beina fyrirspurnum um stund og stað til deildarskrifstofu viðkomandi lands. Póstfangaskrá er að finna á öftustu síðu nýjustu árbókarinnar.

◼ Safnaðarritarar eiga að tryggja að nóg sé til af eyðublöðunum: Umsókn um reglulegt brautryðjandastarf (S-205) og Umsókn um aðstoðarbrautryðjandastarf (S-205b). Þau má panta á ritapöntunareyðublaðinu (S-14). Eigið fyrirliggjandi að minnsta kosti eins árs birgðir.

◼ Minningarhátíðin verður haldin fimmtudaginn 24. mars 2005. Ef samkomur eru venjulega haldnar á fimmtudegi í söfnuðinum á að færa þær á annan dag í vikunni ef ríkissalurinn er laus. Sé það ekki mögulegt og þjónustusamkoman fellur niður mætti koma dagskrárliðum, sem skipta söfnuðinn miklu máli, fyrir á annarri þjónustusamkomu í mánuðinum.

◼ Svæðismótið fyrir þjónustuárið 2005 verður haldið í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi dagana 31. apríl og 1. maí og hefst dagskráin klukkan 9:50 báða dagana. Stef mótsins er: „Látum ,spekina, sem að ofan er,‘ vísa okkur veginn“ og er byggt á Jakobsbréfinu 3:17.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila