Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.05 bls. 7
  • Upprifjun á efni Boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni Boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2005
Ríkisþjónusta okkar – 2005
km 2.05 bls. 7

Upprifjun á efni Boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 28. febrúar 2005. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 3. janúar til 28. febrúar 2005. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐIR

1. Hvernig getum við gert mál okkar skýrara og auðskiljanlegra? [be bls. 226 gr. 1–bls. 227 gr. 1]

2. Hvers konar hugtök gæti þurft að skýra nánar? [be bls. 227 gr. 2-5]

3. Hvernig getum við gert efni, sem við erum að fjalla um, fræðandi fyrir áheyrendurna? [be bls. 231 gr. 1-3]

4. Hvernig getum við fjallað um vel þekktan ritningarstað svo að hann verði fræðandi? [be bls. 231 gr. 4-5]

5. Hvaða áhrif gæti það haft að hvetja áheyrendurna til að skoða nánar vel þekktan ritningarstað? [be bls. 232 gr. 2-4]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvað er falið í því að kenna fólki að ‚óttast Guð og halda hans boðorð‘? (Préd. 12:13) [be bls. 272 gr. 3–bls. 273 gr. 1]

7. Hvernig getum við beint athygli ekki aðeins að nafni Jehóva heldur að honum sem persónu? (Jóel 3:5) [be bls. 274 gr. 3-5]

8. Hversu mikilvægt er að fræðast um Jesú og vitna um hann? (Jóh. 17:3) [be bls. 276 gr. 1]

9. Hvers vegna þurfum við að skilja hlutverk Jesú til að eiga gott samband við Guð og skilja Biblíuna? [be bls. 276 gr. 2]

10. Hvernig sýnum við að við trúum því í raun að Jesús Kristur sé konungur? [be bls. 277 gr. 4]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Var Tara, faðir Abrahams, skurðgoðadýrkandi? (Jós. 24:2)

12. Skorti Gídeon kjark til að framfylgja því verkefni sem Jehóva hafði falið honum? Útskýrðu svarið. (Dóm. 6:25-27)

13. Hvað getum við lært af því hvernig Gídeon talaði til Efraímíta? (Dóm. 8:1-3)

14. Hvað gaf ógestrisni Gíbeumanna til kynna? (Dóm. 19:14, 15)

15. Ýtti það ekki undir stjórnleysi að ‚hver maður skyldi gera það sem honum vel líkaði‘? (Dóm. 21:25)

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila