Myndefni á DVD-diski
Á DVD-disknum Transfusion Alternatives — Documentary Series (Læknismeðferð án blóðgjafar — myndbandssyrpa) er efni þriggja myndbanda. Myndbandið Transfusion-Alternative Strategies — Simple, Safe, Effective (Læknismeðferð án blóðgjafar — einföld, örugg og áhrifarík) var gert fyrir lækna og læknanema og þar eru sýnd fleiri myndskeið frá skurðaðgerðum en á hinum tveimur myndböndunum. Myndbandið Transfusion-Alternative Health Care — Meeting Patient Needs and Rights (Læknismeðferð án blóðgjafar — þarfir og réttindi sjúklinga) var gert sérstaklega fyrir dómara, barnaverndaryfirvöld, yfirvöld heilbrigðismála og blaðamenn sem skrifa um læknisfræði. Það fjallar um hvernig hægt er að sinna þörfum sjúklinga en um leið virða lagalegan rétt þeirra. Myndbandið No Blood — Medicine Meets the Challenge (Læknismeðferð án blóðgjafar — þörfinni svarað) er fyrst og fremst hugsað fyrir almenning. Á DVD-disknum er efni myndbandanna á ensku, auk þess sem hægt er að velja milli frönsku, ítölsku, japönsku, portúgölsku (brasilískrar), rússnesku, spænsku og þýsku. Hikið ekki við að láta lækninn ykkar, biblíunemendur, maka eða skyldmenni sem ekki eru vottar, kennara, vinnufélaga og skólafélaga hafa diskinn.