Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í janúar: Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt, Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Febrúar: Nálægðu þig Jehóva. Mars: Haltu vöku þinni! Ef áhugi er fyrir hendi má bjóða Þekkingarbókina með það fyrir augum að hefja biblíunámskeið. Apríl og maí: Varðturninn og Vaknið! Gott væri að bjóða bókina Sameinuð í tilbeiðslu þegar við heimsækjum aftur áhugasamt fólk og þá sem hafa verið viðstaddir minningarhátíðina eða aðrar samkomur en eru ekki virkir í safnaðarstarfinu. Markmiðið ætti að vera að hefja biblíunámskeið og þá sérstaklega með þeim sem þegar hafa farið yfir Þekkingarbókina og Kröfubæklinginn.
◼ Næsti opinberi fyrirlestur farandhirðis, þegar hann heimsækir söfnuðina eftir 1. febrúar, ber heitið „Breyttu viturlega í óvitrum heimi“.
◼ Söfnuðir ættu að gera viðeigandi ráðstafanir til að halda minningarhátíðina eftir sólsetur fimmtudaginn 24. mars næstkomandi. Brauðið og vínið má ekki bera fram fyrr en sól er sest enda þótt hefja megi flutning ræðunnar fyrir þann tíma. Sólsetur á Akureyri er kl. 19:42, á Selfossi kl. 19:52, í Reykjavík kl. 19:56, í Keflavík kl. 19:58 og á Ísafirði kl. 20:03. Á stöðum þar sem nokkrir söfnuðir nota sama ríkissal getur einn söfnuður eða fleiri orðið sér úti um annað húsnæði þetta kvöld. Þar sem því verður við komið ættu minnst 40 mínútur að líða á milli samkoma svo að allir hafi fullt gagn af hátíðinni. Taka ber tillit til hugsanlegra umferðartafa, tryggja þarf að næg bílastæði séu fyrir hendi og að aðgengi sé gott. Öldungaráðið ætti að ákveða hvernig best sé að standa að málum í sínu byggðarlagi.
◼ Farið verður yfir myndina David — He Trusted in God (Davíð teysti á Guð) á þjónustusamkomu í mars. Þessi mynd verður aðeins fáanleg á DVD-diski sem ber heitið Noah Walked With God — David Trusted in God. Hægt er að velja á milli átta tungumála á diskinum en það eru: Enska, franska, ítalska, japanska, portúgalska (brasilísk), rússneska, spænska og þýska. DVD-diskinn má panta í ritaafgreiðslu safnaðarins.