Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 27. desember 2004. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 1. nóvember til 27. desember 2004. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐIR
1. Hver er ein besta leiðin til að vekja áhuga áheyrenda á ákveðnu efni? [be bls. 218 gr. 3]
2. Nefndu 5 atriði sem einkenna áhrifarík niðurlagsorð. [be bls. 220 gr. 4–bls. 221 gr. 4]
3. Hvernig getum við séð til þess að við förum rétt með staðreyndir? [be bls. 224 rammagrein]
4. Hvernig getum við skilað verkefnum okkar á samkomum þannig að það vitni um djúpa virðingu fyrir því að söfnuðurinn er „stólpi og grundvöllur sannleikans“? (1. Tím. 3:15) [be bls. 224 gr. 1-4]
5. Hvernig getum við farið eftir Orðskviðunum 14:15 þegar við vitnum í atburði líðandi stundar, ummæli annarra og frásagnir? [be bls. 225 gr. 1]
VERKEFNI NR. 1
6. Hvernig er hægt að reikna út hve mörg ár liðu frá sköpun Adams að flóðinu? [si bls. 286 gr. 12]
7. Hvernig er hægt að finna út hvenær Jesús hóf þjónustu sína og hvaða grundvöllur er fyrir því að hún hafi aðeins verið þrjú og hálft ár? [si bls. 291 gr. 16]
8. (a) Hvenær gekk út „orðið um endurreisn Jerúsalem“? (b) Hve mörg ár áttu að líða frá þeim tíma og þar til Jesús kæmi fram sem Messías? (Dan. 9:24-27) [si bls. 291 gr. 18-19]
9. Hvað felst í því að biðjast einlæglega afsökunar til að ‚sættast við bróður okkar‘? (Matt. 5:23, 24) [wE02 1.11. bls. 6 gr. 1, 5]
10. Hvernig eigum við að vinna verkefni sem Guð felur okkur samkvæmt 2. Konungabók 13:18, 19? [wE02 1.12. bls. 31 gr. 1-2]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Nú máttu Ísraelsmenn ekki borða kjöt af skepnu sem ekki hafði verið blóðguð. Hvers vegna máttu þeir gefa það útlendum manni eða selja það aðkomumanni? (5. Mós. 14:21)
12. Hvaða lærdóm er að finna í 5. Mósebók 20:5-7?
13. Hvers vegna var það að taka „kvörn eða efri kvarnarstein að veði“ sambærilegt við að taka „líf“ manns að veði? (5. Mós. 24:6)
14. Nú var Ísraelsmönnum bannað að borða nokkra fitu. Hvað er þá átt við þegar talað er um að þeir hafi borðað ‚feitt kjöt af hrútum‘? (5. Mós. 32:13, 14)
15. Hver er nútímahliðstæða syndar Akans? (Jós. 7:1-26) [w87 1.1. bls. 17 gr. 20]