Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í júlí og ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja“, Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? September: Er til skapari sem er annt um okkur? Einnig má bjóða Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Október: Varðturninn og Vaknið! Þar sem áhuga er að finna má bjóða Kröfubæklinginn með það fyrir augum að hefja nýtt biblíunámskeið.
◼ Næsti opinberi fyrirlestur farandhirðis eftir 1. september heitir „Horfum með trú og hugrekki til framtíðarinnar“.
◼ Safnaðarritarar eiga að tryggja að nóg sé til af eyðublöðunum: Umsókn um reglulegt brautryðjandastarf (S-205) og Umsókn um aðstoðarbrautryðjandastarf (S-205b). Þau má panta á Ritapöntunareyðublaðinu (S-14). Eigið fyrirliggjandi að minnsta kosti eins árs birgðir.
◼ Áður en umsóknir um reglulegt brautryðjandastarf eru sendar til deildarskrifstofunnar er gott að ritari safnaðarins fari yfir þær til að ganga úr skugga um að þær séu rétt útfylltar. Ef umsækjendur muna ekki nákvæmlega hvenær þeir létu skírast ættu þeir að reyna að áætla dagsetninguna og skrá hana hjá sér. Ritarinn skráir dagsetninguna á boðberakortið.
◼ Ef boðberar hafa í hyggju að sækja samkomur eða mót á erlendri grund ættu þeir að beina fyrirspurnum um stund og stað til deildarskrifstofu viðkomandi lands. Póstfangaskrá er að finna á öftustu síðu nýjustu árbókarinnar.
◼ Deildarskrifstofan þarf að hafa rétt heimilisföng og símanúmer allra umsjónarmanna í forsæti og ritara. Vinsamlegast tilkynnið allar breytingar tafarlaust.