Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 6.04 bls. 3
  • Upprifjun á efni Boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni Boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2004
Ríkisþjónusta okkar – 2004
km 6.04 bls. 3

Upprifjun á efni Boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 28. júní 2004. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna munnlegri upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 3. maí til 28. júní 2004. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐIR

1. Hvaða ástæður geta verið fyrir því að ræða hljómi ekki samtalslega eða er of formleg? [be bls. 179 gr. 4]

2. Hvers vegna snýst hljómur raddarinnar ekki aðeins um að anda rétt og slaka á spenntum vöðvum? [be bls. 181 gr. 2]

3. Hvað getum við gert til að vera „öllum allt“ þegar við segjum öðrum frá sannleika Biblíunnar? (1. Kor. 9:20-23) [be bls. 186 gr. 2-4]

4. Hvað felst í því að hlusta með athygli þegar við erum í boðunarstarfinu? [be bls. 187]

5. Hvers vegna er mikilvægt að sýna öllum sem við hittum í boðunarstarfinu virðingu? [be bls. 190]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvert er markmið þeirra sem kenna sannleikann og hvað getur hjálpað okkur að ná því markmiði? (Matt. 5:16; Jóh. 7:16-18) [be bls. 56 gr. 3–bls. 57 gr. 2]

7. Hvers vegna er gott að benda á andstæður þegar við kennum og hvernig notaði Jesús þessa kennsluaðferð? [be bls. 57 gr. 3; bls. 58 gr. 2]

8. Hvernig náði Jesús til hjartna fólks, ólíkt faríseunum? [be bls. 59 gr. 2-3]

9. Hvernig getum við hjálpað nemendum okkar að fara eftir því sem þeir læra, án þess þó að taka ákvarðanir fyrir þá? [be bls. 60 gr. 1-3]

10. Hvernig ættum við að svara spurningum sem tengjast persónulegum ákvörðunum annarra? [be bls. 69 gr. 4–bls. 70 gr. 1]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Hvers vegna þurfti Móse að fylgja nákvæmlega ‚fyrirmyndinni af tjaldbúðinni og fyrirmyndinni af öllum áhöldum hennar‘? (2. Mós. 25:9) [it-2 bls. 1058 gr. 7]

12. Hvað getum við lært af svarinu sem Aron gaf Móse í sambandi við gullkálfinn? (2. Mós. 32:24)

13. Hvað getum við lært af því að Ísraelsmenn sýndu trú með því að hlýða boði Jehóva í 2. Mósebók 34:23, 24?

14. Hver var tilgangurinn með heillafórnum? (3. Mós. 3:1)

15. Hvað fyrirmyndar innsetning Arons í embætti, sem lýst er í 3. Mósebók 8:23, varðandi Jesú? [it-2 bls. 1113 gr. 4; wE68 bls. 399 gr. 24]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila