Notaðu smárit til að hefja samræður eða bjóða biblíunámskeið
1 Dreifing biblíutengdra smárita er gamalreynd og áhrifarík leið til að koma fagnaðarerindinu á framfæri. Smárit fara vel í vasa þannig að það er auðvelt að hafa þau meðferðis hvenær sem er til að nota í boðunarstarfinu, hvort sem um er að ræða formlegt boðunarstarf hús úr húsi eða óformlegt starf.
2 Hvers vegna eru þau áhrifarík? Smáritin eru litrík og aðlaðandi og fyrirsagnirnar áhugaverðar. Lesmálið er ekki langt svo að það virkar ekki yfirþyrmandi fyrir önnum kafið fólk, en boðskapurinn er engu að síður hnitmiðaður og heillandi. Lesandinn fær heilsteypta mynd af sjónarmiði Biblíunnar til þess máls sem ritið fjallar um.
3 Fjögur auðveld skref: Margir boðberar hafa notað þessa einföldu aðferð með góðum árangri: (1) Sýndu viðmælandanum nokkur smárit og spyrðu hvert þeirra hann hafi áhuga á að lesa. (2) Þegar hann hefur valið smárit skaltu bera fram vel undirbúna spurningu sem tekur mið af einhverju aðalatriði ritsins. (3) Svaraðu spurningunni með því að lesa viðeigandi málsgrein eða ritningarstað í smáritinu. (4) Ef viðbrögðin eru góð geturðu rætt meira um efni smáritsins eða vísað í kafla í Kröfubæklingnum eða Þekkingarbókinni um sambærilegt efni. Með þessu móti er jafnvel hægt að koma af stað biblíunámskeiði.
4 Notaðu þau til að bjóða biblíunámskeið: Það er hægðarleikur að nota smárit til að bjóða biblíunámskeið. Smáritið Langar þig til að vita meira um Biblíuna? hentar vel til þess. Eftir að hafa heilsað og kynnt þig geturðu sýnt smáritið og sagt: „Ég er að bjóða fólki í hverfinu ókeypis biblíunámskeið. Í þessu smáriti er stutt kynning á því hvernig það getur farið fram. Má ég gefa þér örstutt sýnishorn?“ Síðan er hægt að taka fram Kröfubæklinginn og fara yfir fyrsta kaflann í heild eða að hluta. Framhaldið ræðst svo af viðbrögðum viðmælandans, en reynslan sýnir að oft þiggur fólk boð okkar um að koma aftur og halda umræðunum áfram.
5 Ef viðmælandinn afþakkar biblíunámskeið er hægt að bjóða honum nýjustu blöðin til að kynna sér boðskap okkar, eða þá bók eða einhvern af bæklingunum eftir atvikum.
6 Smárit gegna mikilvægu hlutverki í boðunarstarfi okkar. Hafðu alltaf gott úrval við höndina og vertu óspar að nota þau til að koma af stað samræðum. — Kól. 4:17.