Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 26. apríl 2004. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna munnlegri upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 1. mars til 26. apríl 2004. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐIR
1. Hvers vegna er betra að flytja ræðu eftir uppkasti en lesa hana af handriti? [be bls. 166 gr. 3]
2. Hvernig getum við komið röð og reglu á hugsanir okkar og búið til uppkast í huganum þegar við undirbúum okkur fyrir boðunarstarfið? [be bls. 167 gr. 3]
3. Notaðu Postulasöguna 13:16-41 og 17:2, 3 til að útskýra hvernig Páll „sannaði, að Jesús væri Kristur“. (Post. 9:22) [be bls. 170 gr. 2]
4. Hvaða kosti hefur það að mæla af munni fram? [be bls. 175 gr. 1-4]
5. Hvaða tálgryfjur geta fylgt því að mæla af munni fram og hvað getur hjálpað þér að forðast þær? [be bls. 175 gr. 5–bls. 176 gr. 3]
VERKEFNI NR. 1
6. Hvað gerði hinn 97 ára gamli Jakob til að öðlast blessun Jehóva eins og fram kemur í 1. Mósebók 32:24-32 og hvað lærum við af þessari frásögu? [wE02 1.8. bls. 29-31]
7. Hvað er „aðgætni“ og hvernig getur hún komið í veg fyrir að við missum jafnvægið og séum sár að óþörfu? (Orðskv. 1:4) [wE02 15.8. bls. 21-2]
8. Hvernig geta ræðumenn gert Biblíuna að undirstöðu ræðu sinnar? [be bls. 52 gr. 6–bls. 53 gr. 5]
9. Hvaða ákvarðanir þarf ræðumaður að taka þegar hann breytir ræðuuppkasti í kjarngóða biblíuskýringu? [be bls. 54 gr. 2-4]
10. Hvers vegna gaf Jehóva Ísraelsmönnum manna að borða vikum og mánuðum saman í eyðimörkinni og hvað getum við lært af því? (5. Mós. 8:16) [wE02 1.9. bls. 30 gr. 3-4]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Hvað er hliðstætt með því sem Jósef og Jesús gerðu eins og sjá má af 1. Mósebók 37:12-17? [w87 1.9. bls. 20 gr. 12]
12. Hvernig sýndi Jósef umhyggjusemi sem var sambærileg við umhyggjuna sem Jesús sýnir, eins og fram kemur í 1. Mósebók 42:25-35? [w87 1.9. bls. 25 gr. 10; bls. 27 gr. 17]
13. Að hvaða leyti er andlega fæðan frá þjónshópnum nú á tímum sambærileg við kornið sem Jósef dreifði? (1. Mós. 47:21-25)
14. Hvað opinberaði Jehóva varðandi nafn sitt þegar hann sagði: „Ég verð sá sem ég verð“? (2. Mós. 3:14, 15, NW)
15. Hvaða tvær hættur fylgja kvörtunarsemi eins og við sjáum af 2. Mósebók 16:2 ,3? [wE93 15.3. bls. 20-1]