Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í nóvember: Hvers krefst Guð af okkur? eða Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Ef húsráðandi á þessi rit má bjóða önnur, eldri rit. Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Einnig mætti bjóða Biblíusögubókina mína eða Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Janúar: Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt, Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Einnig má bjóða Er til skapari sem er annt um okkur? Febrúar: Lífið — varð það til við þróun eða sköpun?
◼ Umsjónarmaður í forsæti eða einhver sem hann tilnefnir á að endurskoða reikningshald safnaðarins 1. desember eða eins fljótt þar á eftir og mögulegt er. Þegar því er lokið skal tilkynna það söfnuðinum eftir að næsta reikningshaldsskýrsla er lesin upp.
◼ Söfnuðir geta pantað innbundna árganga af Varðturninum og Vaknið! fyrir árið 2003 á ritapöntunareyðublaðinu fyrir desember. Listi með tungumálum, sem árgangarnir verða fáanlegir á, verður birtur í bréfinu „Tilkynning til allra safnaða“ sem er sent út reglulega.