Upprifjun á efni boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 25. ágúst 2003. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna munnlegri upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 7. júlí til 25. ágúst 2003. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐIR
1. Hvaða gagn getur verið í því að hafa augnasamband við viðmælendur í boðunarstarfinu? [be bls. 125 gr. 1-2 ásamt ramma]
2. Hvað getur hjálpað þér ef þú ert óöruggur í boðunarstarfinu? [be bls. 128 gr. 4-5]
3. Hvað getur auðveldað þér að nota eðlilegt talmál þegar þú flytur ræðu af ræðupallinum? [be bls. 129 gr. 2 ásamt ramma]
4. Hvaða áhrif ættu meginreglurnar í 3. Mósebók 16:4, 24, 26, 28; Jóhannesi 13:10 og Opinberunarbókinni 19:8 að hafa á útlit okkar og hvers vegna er það mikilvægt? [be bls. 131 gr. 3 ásamt ramma]
5. Lýstu manni sem er látlaus og hefur heilbrigt hugarfar. (1. Tím. 2:9, 10) [be bls. 132 gr. 1]
VERKEFNI NR. 1
6. Á hverju hafa kristnir menn ekki velþóknun þótt þeir umberi hver annan? (Kól. 3:13) [wE01 15.7. bls. 22 gr. 7-8]
7. Rétt eða rangt: Raðtala er heil tala. Skýrðu svarið. [si bls. 282 gr. 24-5]
8. Hver er hreinasta hvötin til að lesa orð Guðs og hvers vegna er hún mikilvæg? [be bls. 24 gr. 1]
9. Hvernig ,geyma vitrir menn þekkingu sína‘? (Orðskv. 10:14) [wE01 15.7. bls. 27 gr. 4-5]
10. Hvers vegna eru góðar venjur Jobs eftirtektarverðar? (Job. 1:1, 8; 2:3) [wE01 1.8. bls. 20 gr. 4]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Hvernig gat hið stjórnandi ráð „einróma ályktað“ að kristnir menn af heiðnum uppruna þyrftu ekki að láta umskerast til að öðlast hjálpræði? (Post. 15:25)
12. Hvers vegna gat hið stjórnandi ráð beðið Pál um að fara eftir vissum ákvæðum Móselögmálsins þótt Jehóva væri búinn að ógilda lögmálið? (Post. 21:20-26) [it-1 bls. 481 gr. 3; it-2 bls. 1163 gr. 6 – bls. 1164 gr. 1]
13. Hvaða rangar ásakanir gegn Páli postula minna okkur á ummæli sem falla um votta Jehóva nú á tímum? (Post. 24:5, 6) [wE01 15.12. bls. 22 gr. 7 – bls. 23 gr. 2]
14. Hvernig gaf Páll boðberum fagnaðarerindisins gott fordæmi, jafnvel þegar hann var í stofufangelsi í tvö ár? (Post. 28:30, 31)
15. Hvernig eru ‚yfirvöldin skipuð af Guði‘ og hvaða áhrif ætti það að hafa á kristna menn? (Rómv. 13:1, 2) [w00 1.9. bls. 4 gr. 5]