Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 6.03 bls. 6
  • Upprifjun á efni boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2003
Ríkisþjónusta okkar – 2003
km 6.03 bls. 6

Upprifjun á efni boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 30. júní 2003. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna munnlegri upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 5. maí til 30. júní 2003. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐIR

1. Hvers vegna er mikilvægt að beita raddbrigðum í ræðu og hvernig getum við gert það? [be rammar á bls. 111 og 112]

2. Hvers vegna getur ræðumann vantað eldmóð þrátt fyrir að hann trúi því sem hann er að segja og elski Jehóva? [be bls. 115 gr. 3-4; bls. 116 gr. 1]

3. Hvað getur hjálpað ræðumanni að sýna hlýju og tilfinningu í ræðu, og hvers vegna er það mikilvægt? [be bls. 119 gr. 1-4]

4. Hvað segir til um það hvort eldmóður, hlýja og aðrar tilfinningar í ræðuflutningi séu hæfilegar? [be bls. 120 gr. 2-5]

5. Rétt eða rangt: Tilburðir og svipbrigði koma aðeins að gagni ef áheyrendurnir eru að horfa á þig. Skýrðu svarið. [be bls. 121 gr. 3]

VERKEFNI NR. 1

6. Hvað hjálpaði Jósía að velja rétta lífsstefnu þó að hann hafi átt erfiða æsku? (2. Kron. 34:1, 2) [wE01 15.4. bls. 27 gr. 1-6; bls. 28 gr.4]

7. Hvað merkja Orðskviðirnir 9:7, 8a og hvernig er hægt að heimfæra þá á boðunarstarfið? [wE01 15.5. bls. 29 gr. 4-5]

8. Hvað átti Jehóva við þegar hann sagði Ísraelsmönnum að ,gleyma ekki‘ og hvernig getum við forðast gleymsku? (5. Mós. 4:9; 8:11) [be bls. 20 gr. 1-3]

9. Hvernig sýna einlæg orð Davíðs í Sálmi 32:1, 5 og Sálmi 51:12, 17 að sá sem iðrast einlæglega eftir að hafa drýgt alvarlega synd þurfi ekki að finnast hann vera einskis virði? [wE01 1.6. bls. 30 gr. 1-3]

10. Hvað getum við lært af ráðleggingum Páls í 1. Tímóteusarbréfi 5:3-16 um að annast þá sem eru hjálparþurfi? [wE01 15.6. bls. 11 gr. 1]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Hvað átti Jesús við í Jóhannesi 3:3 þegar hann talaði um að ‚endurfæðast‘? (Biblían 1912) [w95 1.12. bls. 8-9 gr. 4-5]

12. Hvernig notaði Jesús menntun sína og hvaða mikilvægan lærdóm getum við dregið af því? (Jóh. 7:15-18) [w96 1.4. bls 27-8 gr. 4-7]

13. Af hverju er Jóhannes 7:53–8:11 ekki hafður með í meginmáli Nýheimsþýðingarinnar?

14. Hvernig ,kom Jesús á sama hátt‘ og hann fór til himins? (Post. 1:11) [w90 1.6. bls. 19 gr. 5]

15. Hvers vegna „þorðu [engir aðrir] að samlagast [lærisveinunum],“ eins og fram kemur í Postulasögunni 5:13?

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila