Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.03 bls. 7
  • Það er gagnlegt að svara á samkomum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Það er gagnlegt að svara á samkomum
  • Ríkisþjónusta okkar – 2003
Ríkisþjónusta okkar – 2003
km 5.03 bls. 7

Það er gagnlegt að svara á samkomum

1 Þátttaka þeirra sem eru viðstaddir á samkomunum er stór hluti kennslunnar. Góð svör stuðla að því að samkomurnar séu uppbyggjandi, fræðandi og hvetjandi. (1. Kor. 14:5, 12, 19, 26, 31) Það er ánægjulegt að vera viðstaddur slíkar samkomur.

2 Í Varðturnsnáminu og safnaðarbóknáminu er alltaf farið yfir námsefnið með spurningum og svörum. Þess vegna er eðlilegt að vænta þess að allir viðstaddir séu vel undirbúnir og tilbúnir til að taka þátt í umræðunum. Hvernig getum við átt þátt í því að gera þessar samkomur ánægjulegar og gagnlegar?

3 Hvers vegna ættirðu að svara? Við játum trú okkar þegar við svörum. (Rómv. 10:9, 10) Þá gefst okkur tækifæri til að lofa Jehóva rétt eins og sálmaskáldið Davíð gerði ‚í söfnuðinum.‘ (Sálm. 26:12) Svör okkar geta líka hvatt trúbræður okkar „til kærleika og góðra verka“ eins og Páll postuli skrifaði. (Hebr. 10:23-25) Auk þess höfum við sjálf gagn af því að svara. Það hjálpar okkur að muna efnið sem við lærum svo að við getum notað það við ýmis tækifæri. Það eru því margar góðar ástæður til að svara á samkomum.

4 Hversu vel ættirðu að undirbúa þig? Kringumstæður okkar gera það að verkum að við höfum ekki öll jafnmikinn tíma til að undirbúa okkur. En hverjar sem aðstæður okkar eru ættum við að nota eins mikinn tíma og við getum til að undirbúa okkur. Þeir sem eru mjög uppteknir geta lesið yfir námsefnið fyrir fram og hugleitt í það minnsta nokkra ritningarstaði sem vitnað er í. Þá verður auðveldara með tímanum að eiga markvissan þátt í umræðunum. Sumir hafa hins vegar meiri tíma aflögu og geta því undirbúið svör sín betur, til dæmis með því að athuga þá ritningarstaði sem vísað er til en ekki vitnað í. Þannig hafa allir sem mest gagn af samkomunum og eiga hlutdeild í því að uppbyggja söfnuðinn með svörum sínum.

5 Hvernig undirbýrðu góð svör? Þegar þú undirbýrð þig er gott að byrja á því að fá yfirlit yfir námsefnið. Taktu eftir heiti greinarinnar eða kaflans og millifyrirsögnunum, og skoðaðu síðan myndirnar. Þegar þú lest málsgrein eða efnisgrein gætirðu komið auga á og merkt við aðalatriðin og flett upp þeim ritningarstöðum sem þau eru byggð á. Til að athuga hvort þú skiljir námsefnið gætir þú svarað námsspurningunum sem fylgja hverri efnisgrein. Reyndu að svara með eigin orðum. Rifjaðu að lokum upp aðalatriðin og rökin að baki þeim. Með því að fá heildaryfirlit yfir efnið og síðan leita að aðalatriðunum og röksemdafærslunni munt þú koma auga á hvernig hin einstöku atriði tengjast stefinu eða niðurstöðunni. Lokaupprifjun hjálpar þér svo að muna það sem þú hefur numið. — Sjá Varðturninn, 1. febrúar 1994, bls. 21.

6 Hvernig gefurðu góð svör? Svör okkar ættu ekki að vera löng og flókin. Best er að gefa fyrst stutt og hnitmiðað svar. Farðu ekki yfir alla efnisgreinina í svarinu heldur svaraðu aðeins einu meginatriði. Ef þú gerir það fá fleiri tækifæri til að svara. Þú gætir líka vitnað í þá ritningarstaði sem vísað er til í greininni. Reyndu að beina athygli að þeim hluta biblíutextans sem varðar viðfangsefnið sérstaklega. Ef þú undirbýrð þig vel geturðu svarað með eigin orðum og það gefur þér færi á að endursegja efnið á þann hátt sem þú skildir það. Láttu það ekki slá þig út af laginu þó að svarið hljómi ekki alveg eins og þú vildir. Það gerist af og til hjá öllum. — Sjá ramma á blaðsíðu 70 í bókinni Aflaðu þér menntunar í Boðunarskólanum.

7 Hvað geturðu gert ef þér er ekki tamt að svara? Þeim sem finnst erfitt að svara langar auðvitað til að játa trú sína, lofa Jehóva og hvetja trúsystkini sín. Gefstu ekki upp þótt þú eigir erfitt með að svara á samkomunum. Vertu staðráðinn í að taka framförum og biddu Jehóva um hjálp. (1. Jóh. 5:14, 15) Með því að undirbúa þig eins og þessi grein hvetur til veistu svörin við spurningunum í námsefninu. Þá býrðu jafnframt yfir viðbótarupplýsingum um efnið og þekkir jafnvel biblíulegan grundvöll þess. Þá hefurðu frá miklu að segja á samkomunum. Þú gætir líka sagt stjórnandanum fyrir fram hvaða spurningum þig langi til að svara. Góður undirbúningur og hjálp frá Jehóva gerir þér kleift að svara. — Sjá Sálm 56:4, 5.

8 Kennslan á samkomunum er mjög fjölbreytt og í hverri viku er gert ráð fyrir því að við tökum þátt í henni með því að svara. Við fögnum því að geta átt hlutdeild í því að gera samkomurnar ánægjulegar og gagnlegar fyrir þjóna Jehóva nú á dögum. — Matt. 24:45; Orðskv. 15:23.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila