Trúað fyrir fagnaðarerindinu
1 Okkur er mikill heiður að vera trúað fyrir fagnaðarerindi Guðs. (1. Þess. 2:4) Sumir hafna þessum kröftuga boðskap en réttsinnað fólk laðast að honum eins og að ljúfum ilmi. (2. Kor. 2:14-16) Það hefur hjálpræði í för með sér að taka á móti fagnaðarerindinu og fara eftir því. (Rómv. 1:16) Hvernig eigum við að fara með fagnaðarerindið sem okkur hefur verið trúað fyrir?
2 Jesús og postularnir: Jesús lét boðun fagnaðarerindisins ganga fyrir öllu öðru. (Lúk. 4:18, 43) Hann boðaði það meira að segja þegar hann var þreyttur og svangur, því að honum þótti vænt um fólk og hann kunni að meta boðskapinn. (Mark. 6:30-34) Hann leiddi lærisveinum sínum fyrir sjónir bæði í orði og verki hversu mikilvægt boðunarstarfið væri. — Matt. 28:18-20; Mark. 13:10.
3 Postularnir fetuðu í fótspor Jesú og boðuðu fagnaðarerindið um Guðsríki af kappi. ‚Þeir létu ekki af að kenna og boða fagnaðarerindið‘ jafnvel þótt þeir hefðu verið barðir og þeim hafi verið skipað að hætta að prédika. (Post. 5:40-42) Páll postuli vann þrotlaust að þessu starfi. (1. Kor. 15:9, 10; Kól. 1:29) Hann líkti þeirri ábyrgð að boða fagnaðarerindið við skuld gagnvart samborgurum sínum og var fús að neita sér um ýmiss þægindi til að standa í skilum. — Post. 20:24; Rómv. 1:14-16.
4 Sérréttindi okkar: Okkur hefur verið falið heilagt starfsumboð. Við sýnum að við kunnum að meta það með því að reyna að eiga ríkari þátt í boðunarstarfinu. (Rómv. 15:16) Edward var bundinn við hjólastól. Hann sat oft fyrir framan hótel og ræddi við gestina um trú sína. En hann langaði til að gera meira og lét þess vegna útbúa fyrir sig yfirbyggingu á pallbíl. Þetta farartæki gerði honum síðan kleift að vera brautryðjandi árum saman og leggja þúsundir kílómetra að baki í starfinu. Margir hafa gert svipaðar breytingar á lífi sínu til að geta notað meiri tíma í að boða fagnaðarerindið.
5 Líkjum eftir Jesú og postulunum og látum boðunarstarfið alltaf hafa forgang í lífi okkar. Þannig sýnum við fólki kærleika og látum í ljós að við kunnum að meta fagnaðarerindið sem okkur hefur verið trúað fyrir.