Bréf frá hinu stjórnandi ráði
Kæru bræður og systur.
ÞAÐ er mjög ánægjulegt að skrifa ykkur. Við viljum hrósa ykkur fyrir þann kærleika og þá fórnfýsi sem þið sýnið. Þið munuð sjá af Árbókinni að miklu hefur verið áorkað á síðasta þjónustuári. Eins og fyrr notuðum við yfir milljarð klukkustunda til þess að prédika og kenna og hvöttum fólk þannig til að nálægja sig Jehóva. Það er svo sannarlega mikill heiður að fá að vera samverkamenn hins dýrlega Guðs, föður okkar á himnum. — 1. Kor. 3:9.
Þegar við horfum til þess mikla verks sem er framundan erum við þess fullvissir að þið haldið áfram að líkja eftir kostgæfni og trú þeirra þjóna Guðs sem lýst er í Biblíunni. Páll postuli keppti til dæmis eftir því að efla hag Guðsríkis. Hann skrifaði fyrra bréf sitt til kristna safnaðarins í Korintu líklega síðasta árið sem hann var í Efesus. Hann sagði um áform sín: „Ég stend við í Efesus allt til hvítasunnu, því að mér hafa opnast þar víðar dyr og verkmiklar og andstæðingarnir eru margir.“ — 1. Kor. 16:8, 9.
Páll hafði ákveðið að ferðast til Makedoníu og Korintu. En hann sá að hann gat gert mikið gagn með því að dvelja um tíma í Efesus. Hann var sveigjanlegur og þegar hann sá að mögulegt var að efla hag Guðsríkis þar sem hann var lagaði hann ferðaáætlun sína eftir því. Páll var óðfús að nýta sér það tækifæri að ganga inn um þessar víðu og verkmiklu dyr sem höfðu opnast.
Mikið verk var fyrir höndum því að það þurfti bæði að prédika fagnaðarerindið og styrkja söfnuðinn í Efesus. Páll sagði seinna við öldunga safnaðarins í þeirri borg: „Ég dró ekkert undan, sem yður mátti að gagni verða, heldur boðaði yður það og kenndi opinberlega og í heimahúsum og vitnaði bæði fyrir Gyðingum og Grikkjum um afturhvarf til Guðs og trú á Drottin vorn Jesú.“ — Post. 20:20, 21.
Mörg ykkar hafa á svipaðan hátt nýtt þau tækifæri sem ykkur hafa gefist. Á síðasta þjónustuári voru að meðaltali 798.938 boðberar sem gátu skapað sér aðstæður til að taka þátt í brautryðjandastarfinu. Þið hafið sum hver ferðast til fjarlægra landa til að þjóna sem trúboðar. Þið styðjið söfnuði og boðið fagnaðarerindið af kappi. Sum ykkar hafa lært annað tungumál til að aðstoða þá sem tala erlent mál á svæðinu. Aðrir hafa skapað sér aðstæður til að starfa á óúthlutuðum svæðum eða þar sem þörfin er meiri. Og enn aðrir hafa náð góðum árangri með því að vitna í skólanum, á vinnustað eða á annan hátt, eins og til dæmis í síma. Reynslufrásögur alls staðar að úr heiminum sýna fram á að óháð aldri skapar fólk Guðs sér tækifæri til að miðla öðrum þekkingunni á sannleikanum.
Þið getið verið þess fullviss að Jehóva tekur eftir góðum verkum ykkar og metur þau mikils. Biblían segir: „Guð er ekki ranglátur. Hann gleymir ekki verki yðar og kærleikanum, sem þér auðsýnduð nafni hans.“ (Hebr. 6:10) Verið því áfram vakandi fyrir tækifærum til að efla hreina tilbeiðslu. Sumir geta ef til vill aukið starfið en við getum öll lagt okkar að mörkum til að ná betri árangri í starfi okkar.
Við verðum óhjákvæmilega fyrir andstöðu þegar við boðum fagnaðarerindið. Páll skrifaði eftir að hafa talað um að sér hefðu opnast víðar dyr og verkmiklar: „Andstæðingarnir eru margir.“ Í tilfelli Páls voru andstæðingarnir bæði Gyðingar og fólk af þjóðunum. Sumir réðust á hann og aðrir brugguðu launráð gegn honum. — Post. 19:24-28; 20:18, 19.
Við erum í svipaðri aðstöðu nú á dögum. Við búumst við aukinni andstöðu er eyðing þessa illa heimskerfis nálgast. Satan er fullur reiði sem beinist sérstaklega gegn þjónum Guðs. (Opinb. 12:12) Gleymum því aldrei að Satan er „höfðingi heimsins.“ Jesús sagði lærisveinum sínum: „Væruð þér af heiminum, mundi heimurinn elska sitt eigið. Heimurinn hatar yður af því að þér eruð ekki af heiminum, heldur hef ég útvalið yður úr heiminum.“ — Jóh. 14:30; 15:19.
Við erum staðráðin í því að láta engan veikja trú okkar á Guð eða draga úr þátttöku okkar í boðunarstarfinu. Við vitum að það verður áfram ráðist á okkur og að launráð verða brugguð gegn okkur. Þrátt fyrir það höldum við áfram að prédika fagnaðarerindið um Guðsríki og erum örugg um að Jesús eigi eftir að knosa Satan og sveit hans á tilsettum tíma Jehóva. Andstæðingunum tókst ekki að þagga niður í Páli postula og þeim tekst ekki heldur að þagga niður í þjónum Jehóva nú á dögum. Andi Jehóva starfar enn af fullum krafti meðal fólks hans þrátt fyrir reiði Satans og hatur heimsins. Það gleður okkur mjög mikið að sjá að boðberar fagnaðarerindisins eru orðnir 6.304.645, en það er nýtt hámark!
Það er von okkar að þið haldið áfram að nýta öll færi til að efla hag Guðsríkis. Okkur er einlæglega annt um hvert og eitt ykkar og erum sameinaðir ykkur í þjónustu hins hæsta yfir allri jörðinni. — Sef. 3:9.
Bræður ykkar,
Hið stjórnandi ráð Votta Jehóva