Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.03 bls. 6
  • Upprifjun á efni boðunarskólans

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Upprifjun á efni boðunarskólans
  • Ríkisþjónusta okkar – 2003
Ríkisþjónusta okkar – 2003
km 2.03 bls. 6

Upprifjun á efni boðunarskólans

Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 24. febrúar 2003. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna munnlegri upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 6. janúar til 24. febrúar 2003. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]

ÞJÁLFUNARLIÐIR

1. Rétt eða rangt: Lykillinn að nákvæmni í lestri er að láta það sem lesið er hljóma rétt þó að það sé ögn frábrugðið því sem skrifað er. Útskýrðu. [be bls. 83]

2. Fylltu í eyðurnar: Maður verður að _________________________, _________________________, _________________________ og æfa upphátt til að geta verið nákvæmur í lestri. [be bls. 85]

3. Hvers vegna er skýr framsögn mikilvæg? (1. Kor. 14:8, 9) [be bls. 86]

4. Hvað getur meðal annars valdið óskýrri framsögn og hvað getum við gert til að vera skýrmæltari? [be bls. 87-8]

5. Hvaða orð hafa verið notuð í Boðunarskólanum síðastliðna tvo mánuði sem þér finnst þú þurfa að æfa framburð á? [be bls. 92]

VERKEFNI NR. 1

6. Rétt eða rangt: Augun geta hjálpað okkur að hlusta. Útskýrðu. [be bls. 14]

7. Fylltu í eyðurnar: _________________________, _________________________ og _________________________ eru tímamælar sem Guð hefur látið í té. [si bls. 279 gr. 7]

8. Fylltu í eyðurnar: Í Biblíunni getur hugtakið „dagur“ átt við tímabil sem spannar _________________________ tíma, _________________________ tíma, _________________________ ár eða _________________________. Samhengið ræður því hvað við er átt. [si bls. 279 gr. 8]

9. Hvernig getur fordæmi Hönnu, Markúsar og Elía hjálpað okkur að sigrast á neikvæðum tilfinningum? Hvernig getum við notað fordæmi þeirra til að hjálpa öðrum? [wE01 1.2. bls. 20-3]

10. Hvernig varpar skilningur á íþróttaleikum til forna ljósi á vissa ritningarstaði? Hvernig ættu þessar upplýsingar að snerta líf okkar? [wE01 1.1. bls. 28-31]

VIKULEGUR BIBLÍULESTUR

11. Rétt eða rangt: Þar sem Guðsríki var stofnsett á himnum árið 1914 er ekki lengur við hæfi að biðja: „Til komi þitt ríki.“ (Matt. 6:10) Úskýrðu. [be bls. 279; wE96 1.6. bls. 31]

12. Rétt eða rangt: Orð Jesú í Matteusi 11:24 merkja að þeir sem Jehóva eyddi með eldi í Sódómu og Gómorru fái upprisu. Útskýrðu.

13. Veldu rétt svar: Hinn trúi og hyggni þjónn, sem Jesús talaði um í Matteusi 24:45-47, er (a) stjórnandi ráð Votta Jehóva; (b) allir smurðir kristnir menn sem hópur á jörðinni á hverjum tíma; (c) Jesús Kristur sjálfur. Þessi þjónn sér ,hjúunum‘ fyrir andlegri fæðu á réttum tíma en þau standa fyrir (a) hina smurðu sem einstaklinga; (b) hina aðra sauði; (c) alla sem lesa biblíunámsrit. Húsbóndinn setti þjónshópinn yfir allar eigur sínar árið (a) 1914; (b) 33; (c) 1919.

14. Veldu rétt svar: Netið, sem Jesús talaði um í líkingu sinni í Matteusi 13:47-50, hefur bæði falið í sér smurða kristna menn og (a) Messíasarríki Guðs; (b) félaga þeirra af hópi annarra sauða; (c) kristna heiminn.

15. Hvað ættirðu að gera samkvæmt orðum Jesú í Matteusi 5:24 ef þú heldur þig hafa móðgað trúsystkini þitt? [w96 1.9. bls. 27-8]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila