Hjálpum öðrum að vegsama Jehóva
1 Það er verið að kunngera mikilvægan boðskap út um alla jörðina: „Óttist Guð og gefið honum dýrð, því að komin er stund dóms hans. Tilbiðjið þann, sem gjört hefur himininn og jörðina og hafið og uppsprettur vatnanna.“ (Opinb. 14:6, 7) Það er heiður fyrir okkur að fá að taka þátt í að kunngera þennan boðskap. Hvað þarf fólk að vita um Jehóva til að óttast hann og tilbiðja?
2 Nafn hans: Fólk þarf að þekkja nafn hins eina sanna Guðs til að geta greint hann frá hinum mörgu falsguðum sem tilbeðnir eru nú á dögum. (5. Mós. 4:35; 1. Kor. 8:5, 6) Biblíuritararnir notuðu hið dýrlega nafn Jehóva meira að segja oftar en 7000 sinnum. Við þurfum vissulega að nota dómgreindina til að vita hvenær við eigum að vekja máls á nafni Guðs. Við ættum samt sem áður aldrei að fela það eða koma okkur hjá því að nota það. Guð vill að allir þekki nafn sitt. — Sálm. 83:19.
3 Persónuleiki hans: Ef fólk á að vegsama Jehóva verður það að vita hvers konar Guð hann er. Við verðum að segja því frá einstökum kærleika hans, óviðjafnanlegri visku, algeru réttlæti og almætti ásamt miskunn, ástúðlegri umhyggju og öðrum dásamlegum eiginleikum. (2. Mós. 34:6, 7) Það verður líka að læra að sýna Guði heilnæman ótta og lotningu og gera sér grein fyrir því að líf þess er háð velþóknun hans. — Sálm. 89:8.
4 Að nálægja sig Guði: Fólk verður að ákalla Jehóva í trú til að bjargast í komandi dómi hans. (Rómv. 10:13, 14; 2. Þess. 1:8) Þetta útheimtir meira en að þekkja bara nafn hans og eiginleika. Við verðum að hjálpa fólki að mynda persónulegt samband við Jehóva og treysta honum af öllu hjarta. (Orðskv. 3:5, 6) Þegar fólk fer eftir því sem það lærir, leitar til Guðs í einlægri bæn og finnur hvernig hann hjálpar því í lífinu, mun trú þess styrkjast og auðvelda því að nálægja sig Jehóva. — Sálm. 34:9.
5 Við skulum því kunngera nafn Guðs af kappi og hjálpa öðrum að setja traust sitt á hann og óttast hann. Vera má að við getum hjálpað mörgum fleirum að kynnast Jehóva og vegsama hann sem ‚Guð hjálpræðis síns.‘ — Sálm. 25:5.