Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í apríl og maí: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Bætið áhugasömum við á blaðaleið. Bendið húsráðendum á að þeir geti látið eitthvað af hendi rakna til alþjóðastarfsins ef þeir vilja. Bjóðið Kröfubæklinginn þar sem áhugi er fyrir hendi og reynið sérstaklega að hefja biblíunámskeið. Júní: Bæklingurinn Hvers krefst Guð af okkur? eða bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Ef húsráðandi á þessi rit fyrir má bjóða annan viðeigandi bækling. Júlí: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? Þar sem við á má bjóða bæklingana Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru? og Bók fyrir alla menn.
◼ Boðberahópar, sem hyggjast starfa á óúthlutuðu svæði eða sveitasvæði á komandi mánuðum, ættu að bjóða áhugasömum Kröfubæklinginn eða Þekkingarbókina. Einnig væri gott að láta Sköpunarbókina fylgja með í tilboðinu.
◼ Deildarskrifstofan þarf að hafa á skrá rétt heimilisföng og símanúmer allra umsjónarmanna í forsæti og ritara. Vinsamlegast tilkynnið allar breytingar tafarlaust.
◼ Safnaðarritarar eiga að tryggja að nóg sé til af eyðublöðunum: Umsókn um reglulegt brautryðjandastarf (S-205) og Umsókn um aðstoðarbrautryðjandastarf (S-205b). Þau má panta á ritapöntunareyðublaðinu (S-14). Eigið fyrirliggjandi að minnsta kosti eins árs birgðir. Farið yfir umsóknir um reglulegt brautryðjandastarf til að ganga úr skugga um að þær séu rétt útfylltar. Ef umsækjendur muna ekki nákvæmlega hvenær þeir létu skírast ættu þeir að reyna að áætla dagsetninguna og skrá hana hjá sér.
◼ Ef boðberar hafa í hyggju að sækja samkomur eða mót á erlendri grund ættu þeir að beina fyrirspurnum um stund og stað til deildarskrifstofu viðkomandi lands. Póstfangaskrá er að finna á öftustu síðu nýjustu Árbókarinnar.
◼ Ný rit fáanleg:
◼ Efnisskráin Watch Tower Publications Index 2001 (dx01) — enska.
◼ Efnisskráin Watch Tower Publications Index 1986-2000 (dx86-00) — þýska.
◼ Nýjar hljóðsnældur fáanlegar:
◼ Biblíuleikritið Respect Jehovah’s Authority (csru) — danska, enska, ítalska, litháíska, norska, sænska, úkraínska og þýska.