Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.02 bls. 7
  • Bréf frá hinu stjórnandi ráði

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Bréf frá hinu stjórnandi ráði
  • Ríkisþjónusta okkar – 2002
Ríkisþjónusta okkar – 2002
km 2.02 bls. 7

Bréf frá hinu stjórnandi ráði

Það er mjög ánægjulegt að skrifa ykkur, ,bræðrafélaginu,‘ nú í upphafi 21. aldar og hrósa ykkur fyrir erfiði ykkar. (1. Pét. 2:17) Fyrir nærri 2000 árum bar Jesús fram þessa spurningu: „Mun Mannssonurinn finna trúna á jörðu, þegar hann kemur?“ (Lúk. 18:8) Ötult starf ykkar síðastliðið þjónustuár er skýrt „já“ við spurningu Jesú. Sum ykkar hafa verið fyrirlitin og spottuð vegna trúarinnar og víða megið þið þola stríð, hamfarir, sjúkdóma og hungursneyð. (Lúk. 21:10, 11) Það er kostgæfni ykkar í réttlátum verkum að þakka að Jesús getur enn ,fundið trúna á jörðu‘ og yfir því er vafalaust fögnuður á himni.

Við vitum að það er ekki auðvelt að vera þolgóður. Líttu á raunir trúbræðra okkar í einu landi í Vestur-Asíu. Þar er ofbeldi gegn vottum Jehóva næstum því daglegt brauð. Nýlega leysti lögreglan upp 700 manna mót og vegatálmar hindruðu 1300 manns til viðbótar í að sækja það. Hópur af grímuklæddu fólki, sumt lögreglumenn, gengu berserksgang á mótssvæðinu, börðu marga mótsgesti og kveiktu í byggingunni sem átti að nota fyrir mótið. Við önnur tækifæri hafa trúarofstækismenn barið bræður okkar grimmilega með kylfum alsettum nöglum.

Það er átakanlegt að slíkt skuli eiga sér stað en það kemur ekki á óvart. Páli postula var innblásið að skrifa: „Allir, sem lifa vilja guðrækilega í samfélagi við Krist Jesú, munu ofsóttir verða.“ (2. Tím. 3:12) Á fyrstu öld voru kristnir menn ofsóttir og rægðir og sumir voru jafnvel drepnir. (Post. 5:40; 12:2; 16:22-24; 19:9) Hið sama var að segja um 20. öldina og verður það vafalaust líka um þá 21. Jehóva segir engu að síður: „Engin vopn, sem smíðuð verða móti þér, skulu verða sigurvænleg.“ (Jes. 54:17) Þetta er sannarlega verðmætt loforð. Við erum svo dýrmæt í augum Jehóva að hann segir fyrir munn Sakaría spámanns: „Hver sá er snertir yður, snertir augastein minn.“ (Sak. 2:8) Óvinir tilbiðjenda Jehóva hafa engan möguleika á að yfirbuga þá algerlega. Hrein tilbeiðsla mun halda velli!

Í áðurnefndu landi hafa vottar Jehóva til dæmis fengið að sjá tvö ný boðberamet á þjónustuárinu 2001. Já, bræður okkar halda ótrauðir áfram þrátt fyrir erfiðleika, rétt eins og annars staðar. Á síðasta þjónustuári létu 5.066 skírast í hverri viku um heim allan til tákns um vígslu sína til Jehóva. Þessir nýliðar eru staðráðnir, ásamt okkur öllum, í að „standa stöðugir, fullkomnir og fullvissir í öllu því, sem er vilji Guðs.“ — Kól. 4:12.

Skoðum einnig hver þróunin hefur verið undanfarið í Grikklandi. Þrátt fyrir ákafar ofsóknir grísku rétttrúnaðarkirkjunnar svo árum skiptir eru Vottar Jehóva nú viðurkenndir af ríkisstjórninni sem „þekkt trúfélag.“ Í skjalinu, sem veitir þessa viðurkenningu, segir einnig að gríska Betelheimilið sé „heilagur og vígður staður, tileinkaður tilbeiðslunni á Guði.“ Það er einnig ánægjulegt að segja frá því að á seinasta þjónustuári felldu dómstólar jákvæða úrskurði sem snerta tilbeiðslu okkar í Bandaríkjunum, Búlgaríu, Japan, Kanada, Rúmeníu, Rússlandi og Þýskalandi. Við erum Jehóva þakklát fyrir það að hann heldur verkmiklum dyrum opnum í þessum löndum.

Þegar við íhugum hvernig Jehóva styður fólk sitt á þessum síðustu dögum sjáum við að hann er besti vinurinn sem við getum nokkurn tíma átt. Við höfum yndi af sambandi okkar við hann þar sem við vitum að hann elskar okkur, kennir og leiðréttir. Trúarprófraunir halda áfram en óhagganleg trú á Jehóva heldur okkur uppi. Jakob skrifaði: „Álítið það, bræður mínir, eintómt gleðiefni, er þér ratið í ýmiss konar raunir. Þér vitið, að trúarstaðfesta yðar vekur þolgæði.“ (Jak. 1:2, 3) Þolgæði okkar sýnir enn fremur kærleika okkar til Jehóva og það veitir okkur mikla gleði. Kæru bræður og systur, verið þess fullviss að Jehóva styður hvert og eitt okkar. Ef við erum trúföst mun hann tvímælalaust hjálpa okkur að komast inn í nýja heiminn og hann vill að okkur takist það.

Við hvetjum ykkur því bræður og systur, unga sem aldna, til að hafa stöðugt í huga þær blessanir sem í vændum eru. Megum við hafa sama viðhorf og Páll postuli er hann skrifaði: „Ég lít svo á, að ekki séu þjáningar þessa tíma neitt í samanburði við þá dýrð, sem á oss mun opinberast.“ (Rómv. 8:18) Treystu á Jehóva þegar þú verður fyrir hvers kyns andstreymi. Haltu áfram og gefstu ekki upp. Þú sérð aldrei eftir því. Orð Guðs fullvissar okkur: „Hinn réttláti mun lifa fyrir trúfesti sína.“ — Hab. 2:4.

Bræður ykkar,

Hið stjórnandi ráð Votta Jehóva

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila