Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 12.01 bls. 5–6
  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 12.01 bls. 5–6

Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum

Upprifjun, með lokaðar bækur, á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá 3. september til 24. desember. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á úthlutuðum tíma.

[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna við að svara spurningunum. Tilvísanir, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]

Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar eru réttar eða rangar:

1. Trú er ávöxtur anda Guðs þannig að fólk án trúar annaðhvort leitar ekki andans, það leitar hans í röngum tilgangi eða spyrnir gegn því að hann starfi í lífi þess. (Lúk. 11:13; Gal. 5:22) [rs bls. 129 gr. 1]

2. Sálmur 58:5 segir réttilega að naðran hafi ‚eyru‘ en sé þó heyrnarlaus af náttúrunnar hendi. [Vikulegur biblíulestur; sjá Rbi8 bls. 1583.]

3. Hinn ‚mikli her‘ kvenna, sem nefndur er í Sálmi 68:12, var útlendar ambáttir sem Ísraelsmenn leystu úr haldi þegar þeir sigruðu óvinaþjóðir. [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.7. 31, gr. 7]

4. Ef ákveðið væri við fæðingu eða fyrir fæðingu hvenær og hvernig maður dæi væri ástæðulaust að forðast hættulegar aðstæður eða hugsa um heilsuna, og öryggisráðstafanir myndu engu breyta um dánartíðni. [rs bls. 138 gr. 3]

5. Orð Páls: „Lát engan líta smáum augum á æsku þína,“ gefa til kynna að Tímóteus hafi verið unglingur eða rúmlega tvítugur þegar þetta var skrifað. (1. Tím. 4:12) [wE99 15.9. bls. 29 gr. 1-3; bls. 31 gr. 2]

6. Orðin „herra minn“ í Sálmi 110:1 eiga við Jesú. [Vikurlegur biblíulestur; sjá w94 1.11. bls. 29 gr. 5.]

7. Nafnið Jehóva stendur um það bil 700 sinnum í Sálmunum og styttri myndin, „Jah,“ 43 sinnum, þannig að nafn Guðs er að meðaltali nefnt um 5 sinnum í hverjum sálmi. [si bls. 104 gr. 23]

8. Þótt Jesús sé kallaður ‚guð‘ og ‚guðhetja‘ í Biblíunni er hann hvergi sagður almáttugur. (Jóh. 1:1; Jes. 9:6; 1. Mós. 17:1) [rs bls. 150 gr. 2]

9. Orðskviðirnir eru að efni til viska Salómons. [si bls. 106 gr. 1]

10. Ráð Biblíunnar í Orðskviðunum 21:17 um að vera ekki ‚sólginn í skemmtanir‘ gefur til kynna að það sé rangt að skemmta sér af því að það tekur tíma frá því sem mikilvægara er. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE97 1.10. bls. 27 gr. 7.]

Svarið eftirfarandi spurningum:

11. Á hvað var Jesús að benda með mildri áminningu sinni við Mörtu? (Lúk. 10:40, 41) [wE99 1.9. bls. 30 gr. 7]

12. Hvaða „dýrð“ veitti Jehóva sálmaritaranum? (Sálm. 73:24) [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.10. bls. 30 gr. 3.]

13. Hvaða afstaða til þjónustusérréttinda kemur fram í Sálmi 84:2-4? [Vikulegur biblíulestur; sjá wE97 15.3. bls. 8 gr. 5-7.] 

14. Hvernig sýna Opinberunarbókin 22:17 og Rómverjabréfið 2:4, 5 að Jehóva veit ekki fyrir eða ákveður fyrir fram allt sem fólk gerir? [rs bls. 141 gr. 1-2]

15. Allir frumkristnir menn trúðu kenningunni um þúsund ára stjórn Jesú sem nefnd er í Opinberunarbókinni. Hvaða áhrif urðu til þess að fráhvarfskristnir menn höfnuðu henni? [wE99 1.12. bls. 6 gr. 3–​bls. 7 gr. 5]

16. Hvaða takmörk ættu kristnir menn að setja sér í því að ‚líta á hag annarra‘? (Fil. 2:4) [wE99 1.12. bls. 29 gr. 1]

17. Hvað er gefið í skyn í Sálmi 128:3 þar sem segir að synir séu eins og „teinungar olíutrésins“ umhverfis borð manns? [Vikulegur biblíulestur; sjá wE00 15.8. bls. 30 gr. 4.]

18. Hvaða áhrif hefur það á okkur ef okkur finnast verk Guðs undursamleg? (Sálm. 139:14) [Vikulegur biblíulestur; sjá w94 1.4. bls. 13 gr. 18.]

19. Af hverju segja Orðskviðirnir 5:3, 4 að eftirköst siðleysis séu „beiskari en malurt“ og „beitt eins og tvíeggjað sverð“? [Vikulegur biblíulestur; sjá wE00 15.7. bls. 29 gr. 2.]

20. Hvernig getur skynsemi afstýrt slæmum afleiðingum óþolinmæði og reiði, samanber Orðskviðina 14:29? [Vikulegur biblíulestur; sjá w97 1.6. bls. 9 gr. 7-8.]

Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:

21. Sannir spámenn töluðu _________________________ og lýstu yfir _________________________ . (5. Mós. 18:18-20; 1. Jóh. 4:1-3) [rs bls. 132 gr. 3; bls. 133 gr. 2]

22. Orðskviðirnir gegna tvíþættu hlutverki — að miðla _________________________ og veita _________________________ . (Orðskv. 1:1-4) [wE99 15.9. bls. 13 gr. 1]

23. ‚Skjól hins hæsta‘ er _________________________ þeirra sem standa Guðs megin í deilunni um _________________________ en þeir sem _________________________ þekkja það ekki. (Sálm. 91:1) [Vikulegur biblíulestur; sjá w87 1.10. bls. 31 gr. 6.]

24. Að ‚gleyma eigi neinum velgjörðum Jehóva‘ virðist tengjast því að _________________________ um ‚velgjörðir hans,‘ kærleiksverkin sem lýst er í Sálmi 103. (Sálm. 103:2) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE99 15.5. bls. 21 gr. 5-6.]

25. Orðskviður er kjarnyrt spakmæli þar sem brugðið er upp _________________________ og hefur það markmið að _________________________ . [si bls. 107 gr. 6]

Veljið rétta svarið í eftirfarandi fullyrðingum:

26. Þó að Davíð hefði tilefni til að reiðast þeirri meðferð, sem hann fékk af hendi Sáls, stillti hann sig vegna þess að (hann gerði sér grein fyrir að Sál var ófullkominn og að þjónar Guðs verða að fyrirgefa; hann hafði samband sitt við Jehóva skýrt í huga; hann vissi að það væri rangt að dæma). (1. Sam. 24:7, 16) [wE99 15.8. bls. 8 gr. 7]

27. (Viska; agi; réttlæti) er samspil margra þátta, þar á meðal skilnings, innsæis, skarpskyggni og aðgætni; (gæska; skilningur; góð dómgreind) er hæfnin til að sjá innviði máls og skilja gerð þess með því að átta sig á tengslum hinna einstöku hluta og heildarinnar. (Orðskv. 1:1-4) [wE99 15.9. bls. 13 gr. 2]

28. Styrkur Jósefs til að standast siðlausar umleitanir eiginkonu Pótífars fólst í (þekkingu hans á Móselögunum sem fordæmdu hjúskaparbrot; heilnæmum ótta við háa stöðu eiginmanns hennar; því hve mikils hann mat samband sitt við Jehóva). (1. Mós. 39:7-9) [wE99 1.10. bls. 29 gr. 3]

29. Ritari 119. sálmsins hafði augljóslega miklar mætur á (orði eða lögmáli Guðs; lífinu; hjálpræðisvoninni) sem nefnt er í næstum öllum versum sálmsins. [Vikulegur biblíulestur; sjá w00 1.1. bls. 21 gr. 5; w87 1.12. bls. 30 gr. 2.]

30. Í fyrstu tveim köflum (Rómverjabréfsins; Galatabréfsins; Hebreabréfsins) er vitnað nokkrum sinnum í Sálmana í sambandi við (yfirburði; skírn; jarðneska þjónustu) Jesú Krists. [si bls. 105 gr. 28]

Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan:

Orðskv. 2:19; 14:15; 18:17; Rómv. 10:17; Hebr. 13:18

31. Til að öðlast trú er nauðsynlegt að kynna sér efni Biblíunnar vandlega. [rs bls. 130 gr. 3]

32. Kristnir menn mega ekki stunda óheiðarlega viðskiptahætti eða hunsa réttmæta hagsmuni annarra. [wE99 15.9. bls. 10 gr. 2]

33. Svo getur farið að þeir sem fremja kynferðislegt siðleysi deyi áður en þeir ná að snúa við. [wE99 15.11. bls. 27 gr. 4-5]

34. Vitur og hygginn maður vegur og metur afleiðingar gerða sinna en eltir ekki nýja stefnu í blindni vegna þess eins að hún er vinsæl. [Vikulegur biblíulestur; sjá gE94 8.12. bls. 16 gr. 1.]

35. Þó að röksemdir annars hljómi réttar og sannfærandi er skynsamlegt að hlusta á báða málsaðila áður en afstaða er tekin. [si bls. 111 gr. 36]

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila