Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.01 bls. 1
  • Þú ert „á leiksviði“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Þú ert „á leiksviði“
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
  • Svipað efni
  • Englarnir þjóna þeim sem „hjálpræðið eiga að erfa“
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2009
  • Englar og áhrif þeirra á okkur
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2006
  • Líkjum eftir trúföstum englum
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2025
  • Hverjir eru englarnir?
    Biblíuspurningar og svör
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 8.01 bls. 1

Þú ert „á leiksviði“

1 Páll postuli sagði að við værum „á leiksviði, frammi fyrir öllum heiminum, bæði englum og mönnum.“ (1. Kor. 4:9) Hvað þýðir það og hvaða áhrif ætti það að hafa á þjónustu okkar nú á tímum?

2 Orðalagið „á leiksviði“ hefur sennilega minnt Korintumenn á lokaatriðin í bardögum rómverskra skylmingaþræla þar sem dauðadæmt fólk var leitt fram fyrir þúsundir áhorfenda áður en það var drepið á hrottalegan hátt. Feikilegur fjöldi — bæði menn og englar — horfði einnig upp á þær þjáningar sem kristnir menn á fyrstu öldinni þurftu að þola fyrir að boða fagnaðarerindið. (Hebr. 10:32, 33) Ráðvendni þeirra hafði áhrif á marga áhorfendur alveg eins og þolgæði okkar á nútímaleikvellinum gerir. Hverjir fylgjast með okkur?

3 Heimurinn og menn: Stundum fjalla fjölmiðlar um starfsemi fólks Jehóva. Við erum ánægð þegar við fáum raunsanna og jákvæða umfjöllun en við gerum líka ráð fyrir að lastarar skrifi illa um okkur öðru hverju. Við verðum samt sem áður að halda áfram að kynna okkur sem þjóna Guðs, bæði „í lasti og lofi.“ (2. Kor. 6:4, 8) Hjartahreinir áhorfendur komast að raun um að við erum sannir lærisveinar Jesú Krists.

4 Englarnir: Andaverur eru líka að fylgjast með okkur. Djöfullinn og englar hans fylgjast með — en þeir gera það „í miklum móð“ og reyna að stöðva „vitnisburð Jesú“ sem þjónar Guðs hafa með höndum. (Opinb. 12:9, 12, 17) Trúfastir englar Guðs fylgjast með og fagna jafnvel yfir einum syndara sem iðrast. (Lúk. 15:10) Það ætti að styrkja okkur að vita að englunum finnst boðunarstarfið vera gagnlegasta og mikilvægasta starf sem unnið er á jörðinni núna. — Opinb. 14:6, 7.

5 Þegar þú verður fyrir mótlæti eða þegar þér finnst þú ekki sjá neinn árangur af boðunarstarfinu skaltu muna að þú ert miðpunktur alheimsathygli. Trúfesti þín og þolgæði þitt segir meira en mörg orð. Þegar þú ‚berst trúarinnar góðu baráttu‘ muntu að lokum geta ‚höndlað eilífa lífið.‘ — 1. Tím. 6:12.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila