Megum við bjóða Skaparabókina?
Það var mjög ánægjulegt fyrir okkur að fá nú í ársbyrjun bókina Er til skapari sem er annt um okkur? Bókin er sérstaklega samin fyrir vel menntað fólk sem trúir ekki á Guð, og það er vaxandi þörf fyrir bók sem þessa.
Af hagkvæmnisástæðum er tilboð mánaðarins yfirleitt rit sem höfða til breiðs hóps. En eigum við þá ekki að bjóða Skaparabókina? Jú, auðvitað. Það má bjóða þessa bók á öllum árstímum þegar við hittum fólk sem trúir ekki á Guð en við teljum geta haft gagn af henni. Það má líka bjóða hana fólki sem trúir á Guð en hefur mjög óljósar hugmyndir um hann, eiginleika hans og fyrirætlanir. Við hvetjum þig til að vera með eintak af bókinni í starfstöskunni og vera tilbúinn til að bjóða hana öllum sem þú telur hafa áhuga á að lesa hana.