Skrifleg upprifjun í Guðveldisskólanum
Upprifjun, með lokaðar bækur, á efni sem farið var yfir í Guðveldisskólanum frá 1. janúar til 23. apríl 2001. Notaðu sérblað til að skrifa á svörin við eins mörgum spurningum og þú getur á hinum úthlutaða tíma.
[Athugaðu: Meðan á skriflegu upprifjuninni stendur má aðeins nota Biblíuna við að svara spurningunum. Tilvísanirnar, sem koma á eftir spurningunum, eru fyrir efniskönnun þína. Í tilvísunum til Varðturnsins er ef til vill ekki alltaf getið blaðsíðu og greinarnúmers.]
Merkið við hvort eftirfarandi fullyrðingar eru réttar eða rangar:
1. Enda þótt við myndum aldrei láta tilfinningarnar blinda okkur fyrir grófri synd getum við líkt eftir fordæmi Jósefs og fyrirgefið iðrunarfullum einstaklingi sem hefur brotið gegn okkur. (1. Mós. 42:21; 45:4, 5) [wE99 1.1. bls. 31 gr. 2-3]
2. Fyrri Kroníkubók er aðeins endurtekning Samúels- og Konungabóka, ef frá eru taldar ættarskrárnar. [si bls. 75 gr. 1]
3. Biblían minnist aðeins á einn „andkrist“ sem á að birtast einhvern tíma í framtíðinni. [rs bls. 32]
4. Jesús sýndi auðmýkt með því að þiggja hið einstæða verkefni að koma til jarðar frá himni og gerast lítilmótlegur maður, englunum lægri. (Fil. 2:5-8; Hebr. 2:7) [wE99 1.2. bls. 6 gr. 3.]
5. Fornleifafræðin staðfestir að Sísak hafi ráðist inn í Júda og rænt „fjársjóðu húss [Jehóva] og fjársjóðu konungshallarinnar.“ (2. Kron. 12:9) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE88 1.2. bls. 26 gr. 4.]
6. Kristnir menn á fyrstu öld stunduðu ekki ungbarnaskírn. [rs bls. 55]
7. Við eigum að þjóna Guði án þess að gera okkur vonir um umbun. [wE99 15.4. bls. 16 gr. 1]
8. Davíð hafði jarðneska sköpun Jehóva í huga þegar hann minntist á ‚velgjörðir‘ hans í Sálmi 103:2. [wE99 15.5. bls. 21 gr. 5-6]
9. Musteri Salómons, Serúbabels og Heródesar og tjaldbúð Móse fyrirmynda öll hið sama. [si bls. 87 gr. 16]
10. Ættarskrárnar í 1. Kroníkubók skiptu frumkristna söfnuðinn litlu máli. [si bls. 78 gr. 23]
Svarið eftirfarandi spurningum:
11. Hvers vegna hvíldi dómur Jehóva þungt á húsi Akabs? (1. Kon. 16:31; 2. Kon. 9:7, 26) [si bls. 74 gr. 34]
12. Hvað er einkennandi fyrir þá sem verða fráhvarfsmenn, að því er fram kemur í Matteusi 24:45-51? [rs bls. 35]
13. Hvaða verðmætan lærdóm um sterku hliðarnar má draga af því sem henti Ússía Júdakonung? (2. Kron. 26:15-21) [Vikulegur biblíulestur; sjá wE99 1.12. bls. 26 gr. 1-2.]
14. Jesús var ekki að stofna til helgisiðar þegar hann þvoði fætur postulanna heldur að kenna kröftuga lexíu. Hvaða? (Jóh. 13:4, 5) [wE99 1.3. bls. 31 gr. 1]
15. Hvers vegna var frásaga 1. Kroníkubókar 14:8-17 áhugaverð á tímum Jesaja og hvers vegna ætti kristni heimurinn að gefa henni gaum? (Jes. 28:21) [Vikulegur biblíulestur; sjá w91 1.11. bls. 28 gr. 2-3.]
16. Hvað gerði Baalsdýrkun svo aðlaðandi í augum margra Ísraelsmanna? [wE99 1.4. bls. 29 gr. 3-6]
17. Hvaða gagnlegan lærdóm getum við dregið af vinnu Hiskía við að verja og auka vatnsforða Jerúsalem? (2. Kron. 32:3, 4) [Vikulegur biblíulestur; sjá w96 1.10. bls. 6 gr. 1-2.]
18. Hvernig getur fordæmi Jósía hvatt ungt fólk til að þjóna Guði og standa einart gegn falskri guðsdýrkun? (2. Kron. 34:3, 8, 33) [Vikulegur biblíulestur; sjá w91 1.2. bls. 5 gr. 2.]
19. Voru allir Gyðingar ótrúir sem urðu eftir í Babýlon? Hvaða lærdóm má draga af því? (Esra. 1:3-6) [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.9. bls. 20 gr. 4, 7.]
20. Hvernig sýnir frásagan í 2. Kroníkubók 5:13, 14 að Jehóva hlustaði á hljóðfæraleik og lofsöng þjóna sinna og hafði velþóknun á honum? [Vikulegur biblíulestur; sjá wE94 1.5. bls. 10 gr. 7.]
Tilgreinið orðið eða orðin sem vantar í eftirfarandi fullyrðingar:
21. Sá sem ráðleggur trúbróður þarf að gæta þess að byggja orð sín á _____________________ Guðs en ekki á _____________________ og _____________________ manna. (Kól. 2:8) [wE99 15.1. bls. 22 gr. 1]
22. Það er ekki hægt að vera _____________________ . (Matt. 12:30; 2. Þess. 1:8) [rs bls. 48]
23. Óheftar _____________________ og tál _____________________ getur hindrað andlegan þroska líkt og þyrnar geta komið í veg fyrir að ungplanta þroskist. (Matt. 13:19, 22) [wE99 15.3. bls. 22 gr. 5]
24. Að „láta skírast í þeim tilgangi að vera dánir“ eins og Páll kemst að orði í 1. Korintubréfi 15:29 (NW) merkir að skírast lífsstefnu sem leiðir til _____________________ eins og í tilviki Krists og síðan til _____________________ sem andavera eins og hann. [rs bls. 57]
25. Til að sannkristnum manni takist það sem Salómon mistókst þarf hann að leggja af _____________________ eða _____________________ í guðsdýrkun sinni og fylgja orðum _____________________ um að ‚elska Jehóva, Guð sinn, af öllu hjarta.‘ (Matt. 22:37; 1. Kron. 28:9) [Vikulegur biblíulestur; sjá w86 1.12. bls. 15 gr. 17-18.]
Veljið rétta svarið í eftirfarandi fullyrðingum:
26. Frásagan í 2. Konungabók 17:5, 6 greinir frá því þegar (Tíglat Píleser; Salmaneser 5.; Asarhaddon) réðst inn í tíuættkvíslaríkið Ísrael og hóf þriggja ára umsetur um Samaríu uns hún féll í hendur Assýringum árið (740; 607; 537) f.o.t. [Vikulegur biblíulestur; sjá wE88 15.2. bls. 27 gr. 1.]
27. Tuttugasti og fimmti kafli 2. Konungabókar greinir frá atburðum í Jerúsalem eftir að útlegðin í Babýlon hófst og staðfestir þar með óbeint að (Daníel; Esekíel; Jeremía) hafi ritað bókina og jafnframt að ritun hennar hafi verið lokið um (580; 537; 455) f.o.t. (2. Kon. 25:27) [Vikulegur biblíulestur; sjá si bls. 64 gr. 3.]
28. Orðin í 2. Mósebók 4:11 (NW) um að Jehóva Guð ‚skipi hina mállausu, daufu, sjóngóðu og blindu,‘ merkja að hann (beri sök á fötlun manna; veiti ólíku fólki þjónustusérréttindi; hafi leyft að líkamslýti komi fram í mönnum). [wE99 1.5. bls. 28 gr. 2]
29. Sjötíu ára tímabilið í 2. Kroníkubók 36:17-23 endaði árið (537; 607; 677) f.o.t. [si bls. 84 gr. 35]
30. Biblían minnist aðeins tvívegis á afmæli og varpar (jákvæðu ljósi; neikvæðu ljósi; engu ljósi) á afmælishald. (1. Mós. 40:20-22; Matt. 14:6-10) [rs bls. 68]
Tilgreinið hverjir eftirfarandi ritningarstaða eiga við fullyrðingarnar að neðan:
2. Mós. 21:22, 23; Orðskv. 25:11; Rómv. 12:2; 2. Pét. 3:15, 16; Opinb. 16:13, 14
31. Það þarf að leggja sig fúslega fram til að breyta hugsunarhætti sínum og fylla hugann sannleika Guðs. [wE99 1.4. bls. 22 gr. 2]
32. Það er mikilvægt að nota rétt orð þegar ráð eru gefin. [wE99 15.1. bls. 23 gr. 1]
33. Jehóva gefur til kynna að menn verði dregnir til ábyrgðar fyrir að skaða ófætt barn. [rs bls. 25]
34. Áróður Satans djöfulsins ýtir þjóðunum út í það heimsástand sem leiðir til stríðs við Guð. [rs bls. 48]
35. Það getur orðið okkur til varanlegs tjóns að rangsnúa Ritningunni. [rs bls. 65]