Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 3.01 bls. 7
  • Gefðu Jehóva þitt besta — líka í apríl

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Gefðu Jehóva þitt besta — líka í apríl
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 3.01 bls. 7

Gefðu Jehóva þitt besta — líka í apríl

Þjónar Jehóva hafa alltaf gefið Jehóva sitt besta. Abel færði Jehóva „fórn af frumburðum hjarðar sinnar og af feiti þeirra.“ (1. Mós. 4:4) Ísraelsmenn sýndu Jehóva þá virðingu að koma með bestu skepnurnar og það besta af uppskerunni í musterið. — Samanber Malakí 1:8, 13.

Þegar borin var fram samfélagsfórn fékk sá sem færði fórnina hluta af henni og prestarnir fengu annan hluta. Fitan var talin verðmætust og kom í hlut Jehóva. (3. Mós. 3:1, 9, 16) Ísraelsmaður, sem elskaði Jehóva, kom með það besta í musterið, en Jehóva fékk besta hlutann af því besta.

Undir nýja sáttmálanum eru færðar lifandi fórnir. Líf okkar og þjónusta er heilög fórn til Jehóva. (Rómv. 12:1) Páll talar um sjálfan sig sem fórn til viðbótar lofgerðarfórninni sem bræður hans höfðu borið fram. — Fil. 2:17, Biblían 1912.

Í apríl höfum við sérstakt tilefni til að gefa Jehóva okkar besta. Minningarhátíðin vekur okkur til umhugsunar um mestu og mikilvægustu fórnina sem færð hefur verið. Bræðurnir um allan heim eru önnum kafnir við að gefa Jehóva besta hlutann af því besta. Í apríl eru margir frídagar í okkar heimshluta. Hví ekki að skipuleggja tímann þannig að þú getir notað sem flesta af frídögunum til að auka boðunarstarfið? Slíkar lofgerðarfórnir eru gott merki þess að við viljum gera allt sem við getum til að gefa Jehóva besta hlutann af því besta. — Hebr. 13:15.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila