Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 3.01 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 3.01 bls. 7

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í mars: Bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Sérstakt átak verður gert í biblíunámsstarfinu. Apríl og maí: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Bjóðið Þekkingarbókina eða Kröfubæklinginn og reynið að koma af stað heimabiblíunámskeiðum þar sem áhuga er að finna. Júní: Bæklingurinn Hvers krefst Guð af okkur? eða bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Leggið áherslu á að koma af stað heimabiblíunámskeiðum.

◼ Boðberar, sem vilja vera aðstoðarbrautryðjendur í apríl, ættu að gera áætlanir um það núna og skila inn umsóknum tímanlega. Það auðveldar öldungunum að skipuleggja samkomur fyrir boðunarstarfið og hafa nægar birgðir af blöðum og öðrum ritum fyrirliggjandi. Lesa ætti upp nöfn allra í söfnuðinum sem útnefndir eru aðstoðarbrautryðjendur.

◼ Minningarhátíðin verður haldin sunnudaginn 8. apríl 2001. Þennan dag á ekki að halda neinar samkomur aðrar en fyrir boðunarstarfið. Öldungarnir geta gert ráðstafanir til að hafa Varðturnsnámið á öðrum tíma.

◼ Félagið afgreiðir ekki ritabeiðnir einstakra boðbera beint. Umsjónarmaður í forsæti ætti að láta lesa upp tilkynningu í hverjum mánuði áður en mánaðarleg ritapöntun safnaðarins er send til Félagsins svo að allir sem vilja geti pantað rit hjá bóka- og blaðaþjóninum. Vinsamlegast hafið í huga hvaða rit eru sérpöntunarvara.

◼ Svæðismótið fyrir þjónustuárið 2001 verður haldið í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi dagana 28. og 29. apríl og hefst dagskráin klukkan 9:50 báða dagana. Stef mótsins er: „Elskið Guð — ekki það sem í heiminum er“ og er byggt á 1. Jóhannesarbréfi 2:15-17.

◼ Ný rit fáanleg:

Efnisskráin Watch Tower Publications Index 1997 (dx97) — spænska.

◼ Ný myndbönd fáanleg:

Young People Ask — How Can I Make Real Friends? (Ungt fólk spyr — hvernig get ég eignast sanna vini?) (vcfe) — ítalska, norska, þýska.

Noah — He Walked With God (Nói — hann gekk með Guði) (vcno) —  þýska.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila