Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.01 bls. 7
  • Skaparinn ber umhyggju fyrir okkur

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Skaparinn ber umhyggju fyrir okkur
  • Ríkisþjónusta okkar – 2001
Ríkisþjónusta okkar – 2001
km 2.01 bls. 7

Skaparinn ber umhyggju fyrir okkur

1 Jehóva spurði hina óhlýðnu Ísraelsþjóð eitt sinn þegar hann reyndi að koma vitinu fyrir hana: „Veistu þá ekki? Hefir þú ekki heyrt? [Jehóva] er eilífur Guð, er skapað hefir endimörk jarðarinnar.“ (Jes. 40:28) Við þekkjum mikilfenglegan skapara okkar og sjáum merki um ástríka umhyggju hans í okkar garð. En milljónir manna efast um tilvist hans eða gera sér aðra mynd af honum en Biblían bregður upp. Hvernig getum við hjálpað þeim?

2 Nýja bókin, Er til skapari sem er annt um okkur?, er kjörin til að hjálpa slíku fólki. Hún fær hugsandi menn til að álykta út frá staðreyndum. Hrífandi umfjöllun bókarinnar og sannfærandi rökfærsla ætti að heilla alla sem lesa hana.

3 Kynntu þér Skaparabókina vel: Höfum uppbyggingu bókarinnar vel í huga til að geta notað hana sem best. Í 2.-5. kafla er fjallað um tilurð alheimsins, lífsins og mannsins og hvað býr að baki því öllu. Kaflar 6-9 varpa ljósi á Biblíuna og höfund hennar og einkum á trúverðugleika sköpunarsögunnar. Tíundi kaflinn gefur fullnægjandi svar við einni torræðustu spurningu manna: „Hvers vegna er svona mikið um þjáningar ef skaparanum er annt um okkur?“

4 Reyndu að rökræða við þá sem efast: Á bls. 78-9 kemur Skaparabókin með skýr rök sem nota má til að hjálpa öðrum að komast að réttri niðurstöðu um Guð. Þú getur spurt: „Átti alheimurinn sér upphaf?“ Flestir eru sammála því. Spyrðu þessu næst: „Átti upphafið sér orsök eða ekki?“ Flestir viðurkenna að það hafi átt sér orsök. Spyrðu að lokum: „Var þessi orsök eitthvað eilíft eða einhver eilífur?“ Þessi rökfærsla getur opnað augu margra fyrir því að það hljóti að vera til skapari.

5 Skaparabókin á eftir að koma mörgum að góðu gagni. Sýndu ættingjum, vinnufélögum, skólafélögum og kunningjum bókina. Hafðu hana meðferðis í boðunarstarfinu til að gefa þeim sem efast um tilvist Guðs. Því betur sem við erum heima í bókinni, þeim mun sterkari verður kærleikur okkar til skaparans og ásetningur okkar að fylgja háleitum lífsreglum hans. — Ef. 5:1; Opinb. 4:11.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila