Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? Þar sem við á má bjóða bæklingana Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru? og Bók fyrir alla menn. September: Bókin Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Október: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Bjóða má áhugasömu fólki á afskekktum stöðum áskrift að blöðunum. Síðari hluta mánaðarins verður hafist handa við að dreifa Guðsríkisfréttum nr. 36, „Ný árþúsund — hvað ber framtíðin í skauti sínu?“ Nóvember: Dreifingu Guðsríkisfrétta nr. 36 haldið áfram. Söfnuðir, sem ljúka við að fara yfir starfssvæðið með því að ná til húsráðenda á hverju heimili eða dvalarstað með Guðsríkisfréttir nr. 36, geta að því búnu boðið Kröfubæklinginn eða Þekkingarbókina. Ef húsráðendur eiga þessi rit fyrir má bjóða Lifað að eilífu bókina eða Sköpunarbókina.
◼ Umsjónarmaður í forsæti eða einhver sem hann tilnefnir á að endurskoða reikningshald safnaðarins 1. september eða eins fljótt þar á eftir og mögulegt er. Þegar því er lokið skal tilkynna það söfnuðinum eftir að næsta reikningshaldsskýrsla er lesin upp.
◼ Söfnuðir geta pantað Dagatal votta Jehóva árið 2001 á ritapöntunareyðublaðinu í september. Dagatalið verður fáanlegt á eftirfarandi tungumálum: albönsku, arabísku, armensku, austur-armensku, búlgörsku, dönsku, eistnesku, ensku, finnsku, frönsku, georgísku, grísku, hebresku, hindí, hollensku, indónesísku, ítölsku, japönsku, kínversku, kóresku, króatísku, lettnesku, litháísku, malagasí, norsku, portúgölsku, pólsku, rúmensku, rússnesku, serbnesku, slóvakísku, slóvensku, spænsku, sænsku, tamíl, tékknesku, tyrknesku, úkraínsku og þýsku.
◼ Nægilegt magn eyðublaða fyrir þjónustuárið 2001 verður sent til safnaðanna á næstunni. Vinsamlegast gætið þess að nota eyðublöðin skynsamlega og aðeins í þeim tilgangi sem til er ætlast.
◼ Árleg talning allra rita og blaða á lager skal fara fram 31. ágúst 2000 eða eins nálægt þeim degi og hægt er. Þetta er sams konar talning og sú sem bókaumsjónarmaðurinn framkvæmir mánaðarlega, og niðurstöðutölur skal færa á ritatalningareyðublaðið (S(d)-18). Upplýsingar um heildarfjölda blaða á lager má fá hjá blaðaþjónum hlutaðeigandi safnaða. Umsjónarsöfnuðurinn fær send þrjú eintök af ritatalningareyðublaðinu. Vinsamlegast sendið frumritið til Félagsins ekki síðar en 6. september. Haldið eftir afriti fyrir skjalasafnið. Þriðja eintakið má nota sem vinnublað. Ritari umsjónarsafnaðarins á að hafa eftirlit með talningunni og undirrita eyðublaðið ásamt öldungi í forsæti í umsjónarsöfnuðinum.
◼ Sérstaki mótsdagurinn þjónustuárið 2001 verður haldinn sunnudaginn 26. nóvember í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Stef mótsdagsins er „Verðið fullorðnir í dómgreind.“ Dagskráin hefst kl. 9:55 og lýkur kl. 15:50.
◼ Ný rit fáanleg:
Efnisskráin Watch Tower Publications Index 1996-97 (dx96-97) — finnska.
◼ Nýjar hljóðsnældur fáanlegar:
Biblíuleikritið Appreciating Our Spiritual Heritage (Metum andlega arfleifð okkar) (csoh) — danska.