Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 7.00 bls. 4
  • Kanntu að meta þolinmæði Jehóva?

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Kanntu að meta þolinmæði Jehóva?
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • Svipað efni
  • Líktu eftir langlyndi Jehóva
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2006
  • Lærum af langlyndi Jehóva og Jesú
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2012
  • Höldum áfram að sýna þolinmæði
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2023
  • Boðunarstarfið einkennist af þolinmæði
    Ríkisþjónusta okkar – 2011
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 7.00 bls. 4

Kanntu að meta þolinmæði Jehóva?

1 Hefðir þú kynnst sannleikanum ef Jehóva hefði ekki sýnt þolinmæði síðustu 10 eða 20 árin og látið bera vitni? Við getum verið þakklát fyrir að hann skuli hafa leyft fjölda manna til viðbótar að ‚komast til iðrunar.‘ En hinn mikli dómsdagur hans „mun koma sem þjófur.“ (2. Pét. 3:9, 10) Það má því ekki mistúlka þolinmæði Guðs og halda að endalokum þessa heimskerfis hafi verið slegið á frest. — Hab. 2:3.

2 Finndu til með fólki: Langlyndi Jehóva er miklu meira en við fáum skilið. Misstu ekki sjónar á tilgangi þess. (Jónas 4:1-4, 11) Jehóva sér hið aumkunarverða ásigkomulag manna og finnur til með þeim. Jesú er eins innanbrjósts. Hann kenndi í brjósti um fólkið, sem hann prédikaði fyrir, og vildi auka boðunarstarfið svo að enn fleiri fengju tækifæri til að öðlast eilíft líf. — Matt. 9:35-38.

3 Finnurðu ekki til með þeim sem lenda í hörmungum og hamförum en þekkja ekki sannleikann? Fólk reynir að skilja og takast á við glundroðann í heiminum en er eins og „sauðir, er engan hirði hafa.“ (Mark. 6:34) Við getum hughreyst réttsinnaða menn með því að boða fagnaðarerindið af kappi og sýna að við kunnum að meta þolinmæði Jehóva. — Post. 13:48.

4 Aðkallandi starf: Á síðasta ári létu 323.439 skírast og meira en 14.000.000 sóttu minningarhátíðina. Mikill fjöldi manna hefur því enn möguleika á að komast undan þegar þessu illa heimskerfi verður eytt. Við vitum ekki hve fjölmennur ‚múgurinn mikli‘ verður og við vitum ekki hve lengi við eigum að prédika. (Opinb. 7:9) En Jehóva veit það. Fagnaðarerindið verður boðað í þeim mæli sem hann ætlast til „og þá mun endirinn koma.“ — Matt. 24:14.

5 Tíminn er orðinn stuttur og dagur Guðs vofir yfir. (1. Kor. 7:29a; Hebr. 10:37) Enginn vafi leikur á því að ‚hjálpræðið er nær en þá er vér tókum trú.‘ (Rómv. 13:11) Látum ekki þolinmæði Guðs verða til einskis heldur prédikum af kappi svo að enn fleiri réttlætisunnendur fái að kynnast hinni miklu miskunn Jehóva.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila