Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 7.00 bls. 1
  • „Vér getum ekki annað en talað“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • „Vér getum ekki annað en talað“
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • Svipað efni
  • Tölum orð Guðs af djörfung
    Tilbiðjum hinn eina sanna Guð
  • Haltu áfram að tala orð Guðs með djörfung
    Sameinuð í tilbeiðslu á hinum eina sanna Guði
  • ,Tölum orð Guðs af djörfung‘
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2010
  • „Okkur ber að hlýða Guði“
    Vitnum ítarlega um ríki Guðs
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 7.00 bls. 1

„Vér getum ekki annað en talað“

1 Jesús Kristur fylgist náið með prédikunarstarfinu. (Matt. 28:20; Mark. 13:10) Þótt nærri sex milljónir boðbera beri vitni í 234 löndum megum við ekki ætla að þessu starfi sé lokið. „Vér getum ekki annað en talað“ það sem við höfum lært, og við höldum því áfram uns Guð segir að verkinu sé lokið. — Post. 4:20.

2 Reiddu þig á anda Guðs: Satan beitir miklum þrýstingi til að draga úr okkur kjark og hið ófullkomna hold þjakar okkur á marga vegu (Opinb. 12:17). Þetta getur dregið athygli okkar frá hinu þýðingarmikla prédikunarstarfi. En ef við treystum á Jehóva getur andi hans hjálpað okkur að yfirstíga hvaða hindrun sem er.

3 Þegar frumkristni söfnuðurinn var ofsóttur grimmilega báðu bræðurnir Guð um að veita sér fulla djörfung til að tala orð hans. Hann svaraði bæn þeirra, fyllti þá heilögum anda og glæddi hjá þeim kostgæfni og staðfestu til að halda áfram að boða fagnaðarerindið djarflega. — Post. 4:29, 31; 5:42.

4 Láttu ekki neikvætt umtal draga úr þér kjark: Almenningsálitið og ærumeiðandi umtal getur dregið úr okkur kjark. En munum eftir hugrakkri yfirlýsingu Péturs og hinna postulanna í Postulasögunni 5:29-32 þegar þeir voru frammi fyrir æðstaráðinu. Eins og lögmálskennarinn Gamalíel viðurkenndi er ekki hægt að ónýta verk Guðs. Við vinnum það ekki í eigin krafti. Guð styður þetta mikla starf og hann einn getur látið vinna það. — Sak. 4:6.

5 Biðjum Jehóva daglega um anda hans til að hjálpa okkur að boða fagnaðarerindið af kostgæfni. Megum við geta sagt líkt og Jeremía að guðsríkisboðskapurinn brenni í beinum okkar eins og eldur. (Jer. 20:9) Við getum ekki þagað!

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila