Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.00 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 5.00 bls. 7

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í maí: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Hafið Kröfubæklinginn við höndina til að bjóða áhugasömum og reynið að koma af stað heimabiblíunámskeiðum. Júní: Bæklingurinn Hvers krefst Guð af okkur? Leggið áherslu á að koma af stað heimabiblíunámskeiðum. Júlí og ágúst: Hver sem er af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hvað verður um okkur þegar við deyjum?, Hver er tilgangur lífsins — hvernig getur þú fundið hann?, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís, Þegar ástvinur deyr og Ættum við að trúa á þrenninguna? Þar sem við á má bjóða bæklingana Andar hinna dánu — geta þeir hjálpað þér eða gert þér mein? Eru þeir til í raun og veru? og Bók fyrir alla menn.

◼ Boðberar eru minntir á að setja aldrei póstfang Félagsins á bréf eða rit sem þeir senda til að bera vitni fyrir áhugasömum, fólki sem ekki er heima eða býr á óaðgengilegum svæðum. Þegar slík bréf eru skrifuð skal notast við eigið póstfang eða póstfang ríkissalarins en ekki póstfang Félagsins.

◼ Umsjónarmaður í forsæti eða einhver sem hann tilnefnir á að endurskoða reikningshald safnaðarins 1. júní eða eins fljótt þar á eftir og mögulegt er. Þegar því er lokið skal tilkynna það söfnuðinum eftir að næsta reikningshaldsskýrsla er lesin upp.

◼ Ný rit fáanleg:

Biblíuþýðingin New World Translation of the Greek Scriptures (bi7) — arabíska.

Efnisskráin Watch Tower Publications Index 1998 (dx98) — ítalska.

◼ Nýjar hljóðsnældur fáanlegar:

Biblíuleikritið Appreciating Our Spiritual Heritage (Metum andlega arfleifð okkar) (csoh) — enska, þýska.

Þegar ástvinur deyr (cswe) — þýska.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila