Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 5.00 bls. 8
  • Hafðu gleði af heilagri þjónustu þinni

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Hafðu gleði af heilagri þjónustu þinni
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
  • Svipað efni
  • Gleði – eiginleiki sem við fáum frá Guði
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (námsútgáfa) – 2018
  • Þjónaðu Jehóva með glöðu hjarta
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1995
  • Jehóva þjónað með gleði
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 1991
  • Kristnir menn njóta þess að þjóna
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2001
Sjá meira
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 5.00 bls. 8

Hafðu gleði af heilagri þjónustu þinni

1 Þeir komu aftur „með fögnuði.“ Þannig lýsir Biblían lærisveinunum 70 er þeir komu til Jesú eftir langa prédikunarferð. Það veitti þeim innri gleði að gera vilja Guðs. (Lúk. 10:17) Hvernig geturðu haft sams konar gleði af heilagri þjónustu þinni?

2 Jákvætt viðhorf: Það eru sérréttindi þín að kynna fyrir fólki hinn mikilfenglega tilgang Jehóva. Prédikun þín getur frelsað það úr fjötrum falskra trúarbragða og frá auvirðilegu hátterni heimsins. Þú getur gefið því von um líf í heimi sem er laus við sundurlyndi nútímans. Hugleiddu hve mikla gleði það veitir Jehóva þegar þér tekst að gróðursetja sannleiksfræ í móttækilegu hjarta. Vertu jákvæður og biddu Guð um að láta anda sinn veita þér gleði er þú leggur þig heilshugar fram í þjónustunni.

3 Markviss þjálfun: Jesús veitti lærisveinunum 70 tilsögn svo að þeir gætu fullnað þjónustu sína. (Lúk. 10:1-16) Þjónustusamkomunum hefur verið líkt við þessa þjálfun því að þar lærum við að taka fólk tali, koma af stað samræðum og hefja og stjórna heimabiblíunámskeiðum. Með því að leggja þig fram og þjálfa þig í boðunarstarfinu geturðu slegið á kvíða eða vanmáttarkennd, sem kann að hrjá þig, og verið öruggur og glaður.

4 Hugsaðu um framtíðina: Heilög þjónusta Jesú veitti honum gleði þrátt fyrir þjáningarnar sem hann varð að þola. Af hverju? Af því að hann hafði blessunina og sérréttindin, sem biðu hans, stöðugt fyrir hugskotssjónum. (Hebr. 12:2) Það geturðu einnig gert með því að hafa nafn Jehóva og blessunina, sem verður í nýjum heimi hans, efst í huga og hjarta. Þá verður þjónusta þín innihaldsríkari og ánægjulegri.

5 Mestu sérréttindi okkar núna eru þau að veita Jehóva heilaga þjónustu. Megi orð sálmaritarans því vera einkunnarorð þín: „Að gjöra vilja þinn, Guð minn, er mér yndi.“ — Sálm. 40:9.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila