Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í mars: Bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Gert verður sérstakt átak í biblíunámsstarfinu. Apríl og maí: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Hafið Kröfubæklinginn við höndina til að bjóða áhugasömum og reynið að koma af stað heimabiblíunámskeiðum. Júní: Bæklingurinn Hvers krefst Guð af okkur? Leggið áherslu á að koma af stað heimabiblíunámskeiðum.
◼ Boðberar, sem vilja vera aðstoðarbrautryðjendur í apríl og maí, ættu að gera áætlanir um það núna og skila inn umsóknum tímanlega. Það auðveldar öldungunum að skipuleggja samkomur fyrir boðunarstarfið og hafa nægar birgðir af blöðum og öðrum ritum fyrirliggjandi. Lesa ætti upp nöfn allra í söfnuðinum sem útnefndir eru til að vera aðstoðarbrautryðjendur hvern mánuð.
◼ Í þessu eintaki Ríkisþjónustu okkar er að finna alla námsáætlun bókarinnar Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar. Boðberar geta ljósritað hana og látið í námsbók sína sér til hægðarauka.
◼ Umsjónarmaður í forsæti eða einhver sem hann tilnefnir á að endurskoða reikningshald safnaðarins 1. mars eða eins fljótt þar á eftir og mögulegt er. Þegar því er lokið skal tilkynna það söfnuðinum eftir að næsta reikningshaldsskýrsla er lesin upp.
◼ Minningarhátíðin verður haldin miðvikudaginn 19. apríl 2000. Í söfnuðum þar sem þetta er samkomukvöld ætti að færa samkomuna yfir á annan vikudag þegar ríkissalurinn er laus. Sé það ekki unnt og þjónustusamkoman fellur niður ætti að fella þá dagskrárliði, sem eiga sérstaklega við söfnuðinn, inn í aðra þjónustusamkomu.
◼ Félagið afgreiðir ekki ritabeiðnir einstakra boðbera beint. Umsjónarmaður í forsæti ætti að láta lesa upp tilkynningu í hverjum mánuði áður en mánaðarleg ritapöntun safnaðarins er send til Félagsins svo að allir sem vilja geti pantað rit hjá bóka- og blaðaþjóninum. Vinsamlegast hafið í huga hvaða rit eru sérpöntunarvara.
◼ Söfnuðir geta byrjað að panta geisladiskinn Watchtower Library -- 1999 Edition, en hann verður fáanlegur á sömu níu tungumálunum og 1997 útgáfan, það er að segja á dönsku, ensku, frönsku, hollensku, ítölsku, japönsku (þarf japanska útgáfu af Windows), portúgölsku, spænsku og þýsku. Hafið í huga að þetta er sérpöntunarvara.
◼ Svæðismótið fyrir þjónustuárið 2000 verður haldið í Íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi dagana 29. og 30. apríl og hefst dagskráin klukkan 9:50 báða dagana. Stef mótsins er: „Njóttu góðs af því að ganga á vegum Guðs“ og er byggt á Sálmi 128:1.
◼ Ný rit fáanleg:
Efnisskráin Watch Tower Publications Index 1999 (dx99) — enska.
Bókin Gefðu gaum að spádómi Daníels (dp) — arabíska, tagalog.
◼ Ný myndbönd fáanleg:
Young People Ask — How Can I Make Real Friends? (Ungt fólk spyr — hvernig get ég eignast sanna vini?) (vcfe) — enska.