Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 2.00 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 2.00 bls. 7

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í febrúar: Bækurnar Biblíusögubókin mín og Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Mars: Bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Gert verður sérstakt átak í biblíunámsstarfinu. Apríl og maí: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Hafið Kröfubæklinginn við höndina til að bjóða áhugasömum og reynið að koma af stað heimabiblíunámskeiðum.

◼ Boðberahópar, sem hyggjast starfa á óúthlutuðu svæði eða sveitasvæði á komandi mánuðum, ættu að bjóða áhugasömum Kröfubæklinginn eða Þekkingarbókina. Einnig væri gott að láta Sköpunarbókina fylgja með í tilboðinu.

◼ Ritari safnaðarins og starfshirðir skulu fara yfir starfsemi allra reglulegra brautryðjenda. Ef einhver á erfitt með að uppfylla tímakröfurnar ættu öldungarnir að gera ráðstafanir til að aðstoða hann. Tillögur er að finna í árlegum bréfum Félagsins til öldungaráða vegna brautryðjenda (S-201). Sjá einnig gr. 2-10 í viðauka Ríkisþjónustu okkar í nóvember 1995.

◼ Félaginu er ánægja að tilkynna um útkomu nýs myndbands, Young People Ask — How Can I Make Real Friends? (Ungt fólk spyr — hvernig get ég eignast sanna vini?) Á myndbandinu eru viðtöl við unglingsvotta frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Ítalíu og Spáni, sem ræða opinskátt um hve vandasamt það getur verið að eignast rétta vini, og einnig áhrifamikið nútímaleikrit í anda frásögunnar um Dínu. Myndbandið lýsir af raunsæi hvernig ungt fólk getur leiðst út í slæman félagsskap ef það gætir sín ekki. Tilkynnt verður síðar hvenær það verður fáanlegt í söfnuðunum.

◼ Í vikunni, sem hefst 17. apríl 2000, byrjum við að fara yfir bókina Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar í safnaðarbóknáminu.

◼ Ný rit fáanleg:

Bæklingurinn The Guidance of God — Our Way to Paradise (Leiðsögn Guðs — leiðin til paradísar) (gu) — ítalska.

◼ Ný myndbönd fáanleg:

The Bible — Its Power in Your Life (Biblían — kraftur hennar í lífi þínu) (vcpf) — danska.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila