Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
Íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 1.00 bls. 3
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2000
Ríkisþjónusta okkar – 2000
km 1.00 bls. 3

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í janúar: Bækurnar Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt, Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Einnig má bjóða bækurnar Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? og Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Febrúar: Bækurnar Biblíusögubókin mín og Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Mars: Bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Gert verður sérstakt átak í biblíunámsstarfinu. Apríl: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Hafið Kröfubæklinginn við höndina til að bjóða áhugasömum og reynið að koma af stað heimabiblíunámskeiðum.

◼ Öllum skírðum boðberum, sem viðstaddir verða á þjónustusamkomunni í vikunni er hefst 10. janúar, verða afhent yfirlýsingin Upplýsingar um læknismeðferð/Blóðgjöf óheimil og Nafnskírteini fyrir börn sín.

◼ Næsti opinberi fyrirlestur farandhirðis, þegar hann heimsækir söfnuðina eftir 1. febrúar, ber heitið „Hið raunverulega Harmagedón — hvar og hvenær?“

◼ Söfnuðir ættu að gera ráðstafanir til að halda minningarhátíðina eftir sólsetur miðvikudaginn 19. apríl næstkomandi. Brauðið og vínið má ekki bera fram fyrr en sól er sest enda þótt hefja megi flutning ræðunnar fyrir þann tíma. Sólsetur á Akureyri er kl. 21:08, á Selfossi kl. 21:10, í Reykjavík kl. 21:15 og í Keflavík kl. 21:17. Þótt æskilegt sé að hver söfnuður haldi eigin minningarhátíð er ekki víst að það sé alltaf gerlegt. Á stöðum þar sem nokkrir söfnuðir nota sama ríkissal getur einn söfnuður eða fleiri orðið sér úti um annað húsnæði þetta kvöld. Þar sem því verður við komið ættu minnst 40 mínútur að líða á milli samkoma svo að tími sé til að heilsa gestum, hvetja áhugasama og hafa fullt gagn af hátíðinni. Taka ber tillit til hugsanlegra umferðartafa, tryggja þarf að næg bílastæði séu fyrir hendi og að aðgengi sé gott. Öldungaráðið ætti að ákveða hvernig best sé að standa að málum í sínu byggðarlagi.

◼ Sérræðan fyrir minningarhátíðartímabilið 2000 verður flutt sunnudaginn 16. apríl og heitir: „Hvers vegna þarfnast mannkynið lausnarfórnar?“ Ræðudrögin verða send. Ef farandhirðisheimsókn stendur yfir þessa helgi í einhverjum söfnuði skal flytja sérræðuna viku síðar. Sérræðuna á ekki að flytja í neinum söfnuði fyrir 16. apríl 2000.

◼ Umdæmismótið 2000 verður haldið dagana 11.-13. ágúst í Íþróttahúsinu Digranesi, Kópavogi, og stendur dagskráin frá kl. 9:30 til 17:00 á föstudag og laugardag en kl. 9:30 til 16:00 á sunnudag. Stef mótsins er „Gerendur orðs Guðs.“

◼ Ný rit fáanleg:

Smáritið Does Fate Rule Our Lives? (Ráða örlögin lífi okkar?) (T-71) — franska.

Smáritið „Who Are Jehovah’s Witnesses?“ („Hverjir eru vottar Jehóva?“) (T-73) — franska.

◼ Nýjar hljóðsnældur fáanlegar:

Biblíuleikritið Keep Your Eye Simple (Haltu auga þínu heilu) (csey) — norska

Biblíuleikritið Marked For Survival (Merktir til björgunar) (csme) — danska.

    Íslensk rit (1985-2026)
    Útskrá
    Innskrá
    • Íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2026 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila